Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Bandarískur aðall
Mynd / Pixabay
Líf og starf 20. mars 2026

Bandarískur aðall

Höfundur: Þröstur Helgason
Love Story 

Love Story heitir sjónvarpsþáttaröð frá Hulu (aðgengileg á Disney-streymisveitunni) sem fjallar um ástarsamband Johns F. Kennedy yngri og Carolyn Bessette á tíunda áratugnum. Fólk sem var komið til vits og ára á tíunda áratugnum hlýtur að ráma eitthvað í svo að segja látlausan fréttaflutning af parinu en Kennedy var auðvitað sonur fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fæddur þremur árum áður en faðir hans var myrtur á götum Dallasborgar árið 1963. Bessette var ekki komin af bandarískum aðli en starfaði hjá tískuhönnuðinum Calvin Klein og hafði þannig aðgang að réttu partíunum. Klein var raunar sá sem kynnti parið árið 1992 og fljótlega prýddu myndir af þeim síður slúðurmiðla vítt og breitt um heiminn.

Eins og titill þáttaraðarinnar ber með sér leggur hún höfuðáherslu á ástarsögu þeirra Kennedy og Bessette. Við fylgjumst með þeim frá því þau kynnast þar til þau fara í sína hinstu ferð í júlí 1999. Tragísk endalokin rötuðu auðvitað á síður fréttamiðla um allan heim á sínum tíma og mörgum þótti sem ekki ætti af þessari fjölskyldu Kennedyanna að ganga. Sú ákvörðun þáttagerðarfólksins að láta ástardramað halda uppi söguþræði seríunnar er að mörgu leyti skiljanleg. Við fáum vissulega að kynnast fjölskyldu Johns yngri og öllum þeim sögulega þunga sem hvílir á henni en of mikil áhersla á þann þátt hefði kaffært sögu unga fólksins sem varð ástfangið, eiginlega þrátt fyrir öll þau vandræði sem fylgir því að vera af ætt Kennedys.

Þáttaröðin varpar þannig umfram allt ljósi á John og Bessette, stormasamt ástarsambandið á milli þeirra og samband þeirra við nánustu vini og vandamenn. Fyrir vikið verður þáttaröðin líka fyrst og fremst saga um tíunda áratuginn þegar hinn stafræni heimur tekur að ryðjast inn í líf fólks og valda umbreytingum sem við sjáum enn ekki fyrir endann á. Tuttugasta öldin er í fjörbrotum sínum á þessum árum, enn að mörgu leyti á valdi hefðbundinna miðla sem voru gróðurreitir fyrir stórstjörnur en mótuðu jafnframt almenning í sína einsleitu mynd.

Í þessu landslagi þótti John skera sig úr fyrir klæðnað og útlit en athyglina fékk hann umfram allt fyrir ættarnafnið, ekki ósvipað kóngafólki Evrópu. Tómleikinn í tilvist hans, sem er á köflum skerandi í þáttaröðinni, sprettur ekki síst af þessu innihaldsleysi og þýðingarleysi. Þetta tóm reynir hann að fylla með ástarsamböndum, laganámi og loks með útgáfu tímaritsins George sem hann á þó lítið í ef marka má þættina. Hann er lánlítill og vonlaus í öllum þessum tiltektum sínum þar til hann kynnist Carolyn sem lyftir honum upp úr hyldjúpu tilgangsleysinu. Hún kemur úr heimi súpermódelanna í tískuheimi tíunda áratugarins þar sem hún hefur klifrað upp metorðastigann af eigin rammleik, nógu sterk til þess að láta hann ekki gleypa sig með húð og hári. Og hún vill heldur ekki verða auðveld bráð í munni Kennedyanna.

Ég hef séð fyrstu fimm þætti seríunnar og bíð spenntur eftir þeim sjötta en alls eru þættirnir níu. Óhætt er að mæla með áhorfi, ekki síst fyrir fólk sem man tíunda áratuginn.

Skylt efni: Hrifla | Sj´ónvarpsefni

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...