Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Eyþór Pétursson og Agnes Einarsdóttir í Baldursheimi 2 hlutu Halldórs- skjöldinn fyrir útnefninguna ræktunarbú ársins 2025. Þau er hér á milli Eyþórs Einarssonar, ráðunautar Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, og Sigurborgar Hönnu Sigurðardóttur, formanns Fagráðs í sauðfjárrækt.
Eyþór Pétursson og Agnes Einarsdóttir í Baldursheimi 2 hlutu Halldórs- skjöldinn fyrir útnefninguna ræktunarbú ársins 2025. Þau er hér á milli Eyþórs Einarssonar, ráðunautar Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, og Sigurborgar Hönnu Sigurðardóttur, formanns Fagráðs í sauðfjárrækt.
Mynd / Aðsend
Fréttir 4. maí 2026

Baldursheimur 2 ræktunarbú ársins

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Á Fagfundi sauðfjárræktarinnar á dögunum var Baldursheimur 3 í Mývatnssveit útnefnt ræktunarbú ársins 2025.

Þetta er í fimmta sinn sem ræktunarbú ársins er útnefnt á hinum árlega Fagfundi og hljóta ábúendurnir í Baldursheimi 2, þau Eyþór Pétursson og Agnes Einarsdóttir, því verðlaunagripinn Halldórsskjöldinn til varðveislu næsta árið.

Hæsta einkunnin fyrir gerð

Valið grundvallast á heildareinkunn kynbótamats, en reiknuð er meðaleinkunn fyrir hvert bú sem byggir á ám fæddum 2015 til 2024. Til þess að búið komi til álita þarf það að uppfylla ýmsar kröfur um afurðir í takt við núgildandi ræktunarmarkmið og komast inn á lista yfir „úrvalsbú“ sem birtur er árlega á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins.

Í umfjöllun Eyþórs Einarssonar um búið kom fram að heildareinkunn kynbótamats þess hefði verið 108,2 stig. Í kjölfar þess að EUROPkjötmatskerfið var tekið upp hér á landi hafi féð í Baldursheimi vakið mikla athygli fyrir góða gerð sláturlamba og ekki síst fyrir þær sakir að þessi lömb náðu mikilli holdfyllingu við minni þunga en sást í flestum öðrum hjörðum.

Sagði Eyþór að því komi ekki á óvart að kynbótamat fyrir gerð liggi hátt í þessari hjörð og sé meðaleinkunn þess nú 116 stig, sem sé sú hæsta á úrvalslistanum. Frjósemi væri annar eiginleiki sem væri afar góður í hjörðinni, en þar er meðaleinkunn 107 stig. Kynbótamat fyrir aðra eiginleika væri gott.

Ástríðufullt landgræðslustarf

Þau Eyþór Pétursson og Agnes Einarsdóttir hafa frá árinu 1977 nýtt jörðina Baldursheim 2 og stundað þar blandaðan búskap. Bústofninn keyptu þau af föðurbróður Eyþórs, Baldri Þórissyni, og konu hans, Ingibjörgu Friðjónsdóttur. Í dag telur bústofninn 190 kindur og 30 nautgripi. Í Baldursheimi eru rekin tvö bú en þar er einnig að finna Félagsbúið sem tilheyrir Baldursheimi 1. Þó fjárbúin séu aðskilin er mikil samvinna þar á milli og góðir hrútar lánaðir á víxl.

Í umfjölluninni kom fram að beitilönd við Baldursheim hafi verið rýr þegar þau Eyþór og Agnes hófu búskap en þau hafa lagt stund á landgræðslu með talsverðri ástríðu sem borið hefur góðan árangur. Árið 1998 var Eyþóri veitt Fjöreggið, viðurkenningu Landgræðslunnar, fyrir góðan árangur við landbætur.

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...