Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Dökk bændabrúnka til að fylla upp í sálarholurnar sem rigningadagarnir munu skapa í sumar. Einstaklega ljúffeng með mjólk.
Dökk bændabrúnka til að fylla upp í sálarholurnar sem rigningadagarnir munu skapa í sumar. Einstaklega ljúffeng með mjólk.
Mynd / Hari
Matarkrókurinn 30. júní 2026

Bændabrúnka

Höfundur: Haraldur Jónasson

Súkkulaði er einhver stórkostlegasta uppfinning mannsins. Hvernig bitur kakóbaun frá Mið-Ameríku gat orðið að einhverju því besta sem við sem dýrategund njótum er nær óskiljanlegt. Fæst stöndum við þó í því að búa til súkkulaðiplötur heima en við getum bakað kökur. Súkkulaðikökur eru bestar. Sérstaklega klístraðar nær svarbrúnar brúnkur.

Forverar Mexíkóanna í MiðAmeríku, sem fyrstir nýttu sér kakóbaunina, bjuggu aðallega til kakódrykki og brúkuðu frekar í þá chili-pipar en strásykur. Gerir þá sennilega ekki beinlínis aðlaðandi fyrir okkur hér á fróni. Reyndar bjóða gusumeistarar miðaldra fólki í gufubaði oft upp á drykk sem er ansi nálægt þeim mið-ameríska. En við ætlum að vera á lægra plani og alls ekki hollu, nema fyrir sálina. Enda ætlum við að brúka heilmikið af dönskum rófusykri í bændabrúnkuna okkar. Og góðan slurk af sméri.

Áferðarfögur og dökk-dökkbrún

Síðastliðin ár hefur verð á kakói því miður rokið upp úr öllu veldi. Það þýðir að framleiðendur súkkulaðistykkja hafa freistast til að drýgja dýrðindin með hinu og þessu, eins og sojabaunum og miður góðri olíu. Það þýðir að áferð og bragð er svo sannanlega ekki eins og í gamla daga. Þess vegna ætlum við heimabakararnir að passa sérstaklega upp á að okkar útgáfa verði sérstaklega góð í góminn. Klístruð og örlítið seig.

Til að fá rétta áferð á þá brúnu er best að píska saman sykur og smjör undir hita. Gott að nota ekki of breiðan skaftpott til verksins. Þegar smjörsykurinn er kominn saman fer kakóið út í. Hræra það saman með sama písknum. Þá fer potturinn af hitanum og þegar blandan hefur kólnað örlítið fara eggin út í. Pískuð saman við eitt og eitt. Við þetta þykknar blandan. Passa að hræra hratt og örugglega til að ekki verði til mjög svo ógirnileg eggjahræra. Hún á að verða alveg silkimjúk. Þá fer saltið og vanilludroparnir saman við sem og kaffið. Það má sleppa því en ekki gera það samt. Kaffið ýtir undir súkkulaðibragðið. Ef það er ekki espressovél á heimilinu er hægt að nota smá neskaffi í staðinn. Hálfa matskeið eða svo. Að síðustu fer hveitið út í. Best að hræra það ekki of harkalega saman við. Sleppa písknum núna og nota t.d. sílikon-sleikju.

Blandan fer svo í form. Gott að setja bökunarpappír í formið þannig að hann standi upp úr í sitthvorum endunum. Þá er hægt að lyfta kökunni léttilega upp úr.

Formið getur verið alls konar að lögun og stærð. Persónulega finnst mér best að brúnkan sé þunn. Undir tveimur sentimetrum. Einn og hálfur er fullkomið. Styttir líka bökunartímann. Formið sem skilar þeirri þykkt er sirka 20x30 sentímetrar. Það er ekkert lyftiduft hér þannig að formið getur verið eldfastur bakki og það er einmitt það sem er notað hérna á Kársnesinu. Baka við 160 gráður í 25 mínútur til hálftíma.

Betra að hafa örlítið styttri tíma en lengri. Þetta á að vera svolítið gúí. Kippa kökunni upp úr forminu og láta kólna. Gott að nota kæligrind til verksins. Skera í litla munnbita og passa að klára ekki í einni lotu og drekka mjólk með, bláa helst.

Skylt efni: matarkrókur

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...

Tilraunir með ullarafganga
Fréttir 29. september 2026

Tilraunir með ullarafganga

Prjónaverksmiðjan Kidka á Hvammstanga var í tilraunaverkefni þar sem þróað var n...

Ullarmiklir sauðir og eftirsótt kjöt
Fréttir 29. september 2026

Ullarmiklir sauðir og eftirsótt kjöt

Sauðakjötið frá Hvammshlíð í Austur-Húnavatnssýslu er svo eftirsótt að afurðaver...

Sóknargjöld hækkuð um 200 milljónir króna
Fréttir 29. september 2026

Sóknargjöld hækkuð um 200 milljónir króna

Ein af þeim tillögum sem lögð er fram í tengslum við fjárlagafrumvarp næsta árs ...

Ullarvika í fjórða sinn
Fréttir 28. september 2026

Ullarvika í fjórða sinn

Ullarvikan á Suðurlandi verður haldin hátíðleg dagana 27. september–3. október n...

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 3,2 milljarða
Fréttir 28. september 2026

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 3,2 milljarða

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs verða skert um 3,2 milljarða króna á næsta á...

Bændur hljóta viðurkenningu
Fréttir 28. september 2026

Bændur hljóta viðurkenningu

Eymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir, sem standa að baki Móður jörð í V...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f