Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
"Að mati Búnaðarþings er ekki forsvaranlegt að fara í þá vegferð þegar hverfandi líkur eru á niðurstöðu sem réttlætir þá miklu óvissu sem viðræðuferlið myndi skapa fyrir íslenskan landbúnað."
"Að mati Búnaðarþings er ekki forsvaranlegt að fara í þá vegferð þegar hverfandi líkur eru á niðurstöðu sem réttlætir þá miklu óvissu sem viðræðuferlið myndi skapa fyrir íslenskan landbúnað."
Fréttir 14. ágúst 2026

Aukabúnaðarþing ályktar gegn ESB-aðild

Höfundur: Þröstur Helgason

Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands, haldið í Reykjavík þann 14. ágúst 2026, telur að
hagsmunir íslensks landbúnaðar séu að standa utan sameiginlegu landbúnaðarstefnu
Evrópusambandsins. Af þeim sökum leggst Búnaðarþing gegn aðild Íslands að
Evrópusambandinu og þar með að hefja á ný viðræður um aðild. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Bændasamtökum Íslands.
Rökstuðningur ályktunar má lesa hér að neðan:
"Engum vafa er undirorpið að íslenskur landbúnaður þyrfti að fá víðtækar varanlegar
undanþágur og sérlausnir frá regluverki Evrópusambandsins ef kæmi til inngöngu Íslands
í sambandið. Um það er ekki deilt.
Meginregla Evrópusambandsins er að aðildarríki taki upp og framfylgi sameiginlegu
regluverki sambandsins í heild sinni. Undanþágur og sérlausnir innan sambandsins eru
undantekning frá grundvallarforsendum aðildar og sæta almennt því skilyrði að þær séu
samrýmanlegar markmiðum innri markaðarins og meginreglum þeirrar stefnu sem um
ræðir og raski ekki virkni hennar.
Skýrslan sýnir að ekkert aðildarríki Evrópusambandsins hefur fengið undanþágu til að
standa utan sameiginlegu landbúnaðarstefnunnar og ekkert ríki hefur fengið svo
víðtækar varanlegar undanþágur frá meginregluverki stefnunnar sem jafngilda því að
standa utan hennar. Þannig eru hverfandi líkur á því að Ísland gæti samið um svo víðtækar og varanlegar sérlausnir að þær fælu í sér að íslenskur landbúnaður stæði að verulegu leyti utan þeirrar umgjarðar sem sameiginleg landbúnaðarstefna sambandsins setur.
Að mati Búnaðarþings er ekki hægt að skilja á milli umræðu um aðild og aðildarviðræðna.
Með því að hefja aðildarviðræður að nýju er verið að samþykkja að hefja ferli í átt að aðild að Evrópusambandinu. Að mati Búnaðarþings er ekki forsvaranlegt að fara í þá vegferð þegar hverfandi líkur eru á niðurstöðu sem réttlætir þá miklu óvissu sem viðræðuferlið myndi skapa fyrir íslenskan landbúnað. Þegar engar trúverðugar lausnir eru í sjónmáli er hvorki ábyrgt né skynsamlegt að leggja atvinnugreinina undir slíka áhættu.
Ályktunin byggir á skýrslu milliþinganefndar Bændasamtaka Íslands, sem ber heitið
Íslenskur landbúnaður og möguleg ESB-aðild, gefin út 6. ágúst 2026."

Skylt efni: Búnaðarþing | esb

Ullarvika í fjórða sinn
Fréttir 28. september 2026

Ullarvika í fjórða sinn

Ullarvikan á Suðurlandi verður haldin hátíðleg dagana 27. september–3. október n...

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 3,2 milljarða
Fréttir 28. september 2026

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 3,2 milljarða

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs verða skert um 3,2 milljarða króna á næsta á...

Bændur hljóta viðurkenningu
Fréttir 28. september 2026

Bændur hljóta viðurkenningu

Eymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir, sem standa að baki Móður jörð í V...

Hestamynd og hellabíó
Fréttir 28. september 2026

Hestamynd og hellabíó

Reykjavík International Film Festival (RIFF) hefst 24. september og stendur yfir...

Hægur samdráttur og langt frá markmiðum
Fréttir 28. september 2026

Hægur samdráttur og langt frá markmiðum

Tæplega fjögurra prósenta heildarsamdráttur varð í heildarlosun gróðurhúsaloftte...

Greiðslustaðan afar erfið
Fréttir 25. september 2026

Greiðslustaðan afar erfið

Sala á vörum Ístex hefur verið góð seinni part sumars. Greiðslustaðan er þó enn ...

Frestar verðhækkunum til að stuðla að lækkun verðbólgu
Fréttir 25. september 2026

Frestar verðhækkunum til að stuðla að lækkun verðbólgu

Sláturfélag Suðurlands frestar verðhækkunum haustsins til þess að koma til móts ...

Minna fjármagn til loftslagsaðgerða í landbúnaði
Fréttir 25. september 2026

Minna fjármagn til loftslagsaðgerða í landbúnaði

Framlag stjórnvalda til innleiðingar loftslagsaðgerða í landbúnaði verður skert ...