Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Sjálfstæðir ostaframleiðendur hafa sumir þurft að hætta starfsemi vegna aukins kostnaðar á vöruútflutningi vegna Brexit.
Sjálfstæðir ostaframleiðendur hafa sumir þurft að hætta starfsemi vegna aukins kostnaðar á vöruútflutningi vegna Brexit.
Mynd / unsplash
Utan úr heimi 17. ágúst 2026

Áratug eftir Brexit-kosningar

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Tíu ár eru síðan Bretar kusu að ganga úr Evrópusambandinu. Útgangan hefur haft víðtæk áhrif, meðal annars á landbúnað og lítil og millistór fyrirtæki í matvælaframleiðslu. Fréttamiðlar í Bretlandi hafa í sumar fjallað um áhrif útgöngunnar á landbúnað og sjálfstæða matvælaframleiðandur líkt og osta- og víngerðarmenn.

Í aðdraganda Brexitkosninganna árið 2016, sem sneru að því hvort Bretland ætti að ganga úr Evrópusambandinu, voru skoðanir bænda þarlendis skiptar og misjafnar eftir búgreinum. Umræðan snerist að miklu leyti um hvaða frelsi Bretland myndi hafa utan Evrópusambandsins til þess að skapa eigin framleiðslustyrki og eigin regluverk í kringum umhverfismál og hvaða áhrif útgangan hefði á inn- og útflutning á breskum afurðum.

Bretland gekk í Evrópusambandið 1973 og var formlega meðlimur þar til árið 2020. Síðan þá hafa Bretar unnið að því að semja um nýja viðskiptasamninga við um 70 ríki og við Evrópusambandið sjálft. Margir samninganna byggja á þeim sem Bretland var áður með innan Evrópusambandsins en aðrir eru nýir frá grunni. Nýir samningar hafa þó ekki allir verið til þess gerðir að styrkja innlenda framleiðslu. Nýr verslunarsamningur við Ástralíu hefur til að mynda reynst umdeildur þar sem innflutningur á ódýru nautakjöti hefur komið hratt inn á breska markaðinn og sala á innlendu nautakjöti hrunið.

Þrátt fyrir að þeir samningar sem Bretland hefur gert að nýju við Evrópusambandið séu líkir þeim sem voru til staðar fyrir útgönguna er nú ekki útilokað að tollar verði settir á inn- og útflutning, á báða bóga, ef til þess kemur að reglugerðir á öðrum staðnum breytist til muna.

Lítil og millistór fyrirtæki í matvælaframleisðlu hafa verið óánægð með afleiðingar Brexit. Tæplega 20.000 fyrirtæki hættu útflutningi til Evrópusambandsins vegna hárra gjalda og mikillar pappírsvinnu. Þeir sem ekki hafa náð að halda velli á innlendum markaði hafa sumir hætt en aðrir hafa selt starfsemi sína til stærri fyrirtækja. Sjálfstæðir framleiðendur hafa gagnrýnt að stjörnvöld hafi ekki undirbúið útgönguna vel og ekki verið með langtíma framtíðarplön í huga.

Í viðtölum við bændur á vef BBC standa sumir fast á því sem þeir kusu árið 2017 en aðrir hafa skipt um skoðun. Nautgripabóndinn Simon Maiklem í Surrey kaus að vera áfram í Evrópusambandinu og segist enn sem komið er ekki hafa séð neinn ávinning af því að ganga úr því en hans starfsemi var betur sett innan ESB. Að hans sögn hafa loforð um minna skrifræði og frekari styrki og niðurgreiðslur ekki ræst og sé hans viðskiptamódel sem nautgripabóndi hrunið þar sem hann skorti markaðinn sem hann stólaði á áður.

Sjómaðurinn Mark Ball í Sussex kaus að ganga úr Evrópusambandinu og myndi enn kjósa það í dag. Hann vonaðist til þess að útganga þýddi meiri stjórn á lögsögu og fiskveiðum í kringum Bretland. Enn sem komið er segir hann að ekkert hafi breyst og að bátar aðildarríkja veiði enn að sex mílum á meðan að útflutningur hefur reynst dýrari og erfiðari fyrir breska sjómenn. Hann segir að ríkisstjórn Bretlands hafi ekki komist að samkomulagi sem væri breskum fiskveiðum í vil.

Robert Pascall, ávaxtabóndi í Kent, kaus útgöngu en segist í dag sjá að það hefði verið betur efnahagslega séð að vera áfram í Evrópusambandinu. Hann segist í dag sjá bæði kosti og galla Brexit en í aðdraganda kosninganna hafi þjóðarstolt spilað inn í ákvörðun sína.

Skylt efni: Brexit

Þjónusta Microsoft liggur niðri
Fréttir 13. nóvember 2026

Þjónusta Microsoft liggur niðri

Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið ni...

Matarmót Austurlands á laugardaginn
Fréttir 12. nóvember 2026

Matarmót Austurlands á laugardaginn

Matarmót Austurlands verður haldið í sjötta sinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum la...

Miðdalur fyrirmyndarbú
Fréttir 11. nóvember 2026

Miðdalur fyrirmyndarbú

Ábúendur í Miðdal í Kjósarhreppi fengu viðurkenningu sem fyrirmyndarbú deildar n...

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt
Fréttir 11. nóvember 2026

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt

Grænbók um landsáætlun í landgræðslu og skógrækt var nýlega sett í Samráðsgátt s...

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði
Fréttir 10. nóvember 2026

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði

Fagráð í lífrænum landbúnaði stendur fyrir málþinginu „Tíföldum lífræna framleið...

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands
Fréttir 10. nóvember 2026

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands

Búferlaflutningar hafa verið hagfelldir á Vesturlandi undan-arin fimm ár. Fleiri...

Heildarlög um loftslagsmál
Fréttir 10. nóvember 2026

Heildarlög um loftslagsmál

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra mælti fyrir frum...

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni
Fréttir 10. nóvember 2026

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni

Út er komin aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Meðal forgangsaðgerða er ...