Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Skoðun 27. ágúst 2026

Áhættan er of mikil

Höfundur: Trausti Hjálmarsson

Loks er komið að kosningunum sem tekið hafa yfir umræðuna hér á landi í allt sumar og þrátt fyrir að ekki hafi allir sýnt sínar bestu hliðar í þeirri orrahríð þá hefur hún skerpt á mörgu sem skerpa þurfti á. Eins og lesendur vita tóku bændur spurninguna alvarlega og málið föstum tökum. Farið var í umfangsmikla upplýsingaöflun og greiningarvinnu og afrakstur hennar, skýrsla milliþinganefndar um íslenskan landbúnað og ESB, var svo lögð fyrir aukabúnaðarþing.

Niðurstaðan var sú að Búnaðarþing taldi hagsmunum íslensks landbúnaðar best borgið utan sameiginlegrar landbúnaðarstefnu ESB og lagðist þingið því gegn aðild Íslands að ESB og þar með að hefja á ný aðildarviðræður.

Rétt er að taka fram að fari þjóðaratkvæðagreiðslan á þann veg að ákveðið verður að fara í aðildarviðræðurnar munu Bændasamtökin að sjálfsögðu taka þátt í þeirri vinnu sem fram undan verður við að skilgreina samningsmarkmið og fylgja þeim eftir – við munum ekki skorast undan þar frekar en annars staðar.

En það er mikilvægt að fólk skilji þær ástæður sem liggja að baki niðurstöðu Búnaðarþings, en um er að ræða áhættumat, sem tekur til greina mögulegan ábata af inngöngu Íslands í ESB og þá áhættu sem innganga hefði í för með sér fyrir íslenskan landbúnað.

Ekki er um það deilt að íslenskur landbúnaður þyrfti víðtækar varanlegar undanþágur og sérlausnir frá regluverki sambandsins ef til inngöngu kæmi. Dæmin sýna að ekkert aðildarríki Evrópusambandsins hefur fengið undanþágu til að standa utan sameiginlegu landbúnaðarstefnunnar, eða svo víðtækar varanlegar undanþágur að það jafngildi því að standa utan hennar.

Að sjálfsögðu getur enginn séð það nákvæmlega fyrir hver niðurstaða viðræðna við ESB yrði, en telja verður hverfandi líkur á því að Ísland gæti samið um svo víðtækar og varanlegar sérlausnir að þær fælu í sér að íslenskur landbúnaður stæði að verulegu leyti utan þeirrar umgjarðar sem sameiginleg landbúnaðarstefna sambandsins setur.

Nefndir hafa verið ýmsir kostir við landbúnaðarstefnuna sjálfa fyrir íslenska bændur, ýmsar greiðslur sem ekki eru hluti af búvörusamningum í dag. En ég get ekki séð að í sameiginlegu landbúnaðarstefnunni sé að finna neitt það sem íslensk stjórnvöld og bændur geta ekki samið um sín á milli – án aðkomu Evrópusambandsins. Íslendingar stjórna sínum landbúnaði sjálfir og við ráðum fyrirkomulagi landbúnaðarkerfisins – það munum við ekki geta að sama marki eftir inngöngu í ESB.

Helstu fyrirmyndirnar um sérlausnir koma frá Finnlandi og Svíþjóð, en þær fela í sér heimildir ríkjanna til að styðja við sinn landbúnað umfram það sem kemur í gegnum sameiginlegu landbúnaðarstefnuna.

Þegar haft er í huga að Ísland mun greiða meira í sjóði sambandsins en við munum fá til baka, þ.á m. í greiðslum til landbúnaðarins, þýðir þetta að íslenskir bændur eiga að treysta því að ríkið muni hafa vilja til að auka verulega stuðning við landbúnaðinn frá því sem nú er – og viðhalda honum til lengri tíma. Lái okkur hver sem vill ef bændur eiga erfitt með að treysta á slíkt.

Þá verður ekkert fram hjá því litið að viðræðurnar sjálfar fela í sér áhættu fyrir bændur. Meðan óvissa ríkir um framtíðarskipulag landbúnaðarins er erfitt að sjá fyrir sér að farið verði í miklar fjárfestingar í grein, sem óneitanlega þarf mjög á fjárfestingu að halda. Sömu kælingaráhrifa mun gæta á nýliðun í greininni.

Ákvörðun Búnaðarþings byggir á þessu áhættumati. Þegar væntur ávinningur er ekki meiri en raun ber vitni og þegar kostnaður við viðræðurnar er fyrirsjáanlegur og mikill, er ekki hægt að mæla með því að farið verði í þessa vegferð.

Höfundur er formaður Bændasamtaka Íslands.

Skylt efni: pistill formanns

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Fréttir 25. nóvember 2026

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggin...

Hvetur alla til að skrá geitur
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hák...

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arn...

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni
Fréttir 24. nóvember 2026

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni

Innviðaráðuneytið úthlutaði 27 milljónum króna til 14 verkefna sem snúa að því a...

Töfrar Tálknafjarðar
Fréttir 24. nóvember 2026

Töfrar Tálknafjarðar

Nýtt byggðaþróunarverkefni undir heitinu Töfrar Tálknafjarðar hófst formlega með...

Fjölmargir arnarungar komnir á legg
Fréttir 23. nóvember 2026

Fjölmargir arnarungar komnir á legg

58 arnarungar komust á legg í sumar. Varp fannst auk þess á þremur áður óþekktum...