Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Helgi Rafn Gunnarsson.
Helgi Rafn Gunnarsson.
Mynd / Aðsend
Fréttir 4. ágúst 2026

7% lækkun á vörum

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Helgi Rafn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Biobús, og hans starfsfólk lækkuðu vöruverð um 7% á vörum fyrirtækisins og gildir lækkunina til 31. ágúst nk.

Meðal vöruflokka eru lífræn mjólk og fjölbreytt úrval jógúrtvara. „Viðbrögðin hafa verið mjög jákvæð. Innkaupastjórar verslanakeðjanna tóku þessari ákvörðun mjög vel og hétu því að skila verðlækkuninni að fullu til neytenda. Við finnum líka fyrir því að fólk tekur svona fréttum vel, sérstaklega þar sem umræðan síðustu mánuði hefur að mestu snúist um verðhækkanir og verðbólgu. Við vonum að þetta geri fleirum kleift að velja lífrænar mjólkurvörur,“ segir Helgi Rafn.

„Sumarið hefur verið einstaklega gott og lífrænu kýrnar hafa aldrei mjólkað jafn mikið. Salan hjá okkur hefur verið mjög góð síðustu mánuði og við höfum unnið úr allri þeirri lífrænu mjólk sem hefur verið í boði. Reyndar höfum við oft þurft að skammta vörur til verslana þegar hráefnið hefur ekki dugað,“ segir Helgi Rafn enn fremur.

En kemur til greina að 7% lækkunin haldi áfram eftir 31. ágúst? „Við höfum ekki tekið ákvörðun um það, sjáum til hvernig átakið gengur og hvernig mjólkurframboðið þróast þegar líður á haustið. Það mun ráða milklu um framhaldið, þannig við útilokum það ekki,“ segir Helgi Rafn. Hjá Biobúi vinna 11 starfsmenn. 

Skylt efni: Biobú

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...