Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Aðgengi að ræktunarlandi og gróðurhúsum á Gaza-ströndinni frá 24. júní 2026.
Aðgengi að ræktunarlandi og gróðurhúsum á Gaza-ströndinni frá 24. júní 2026.
Mynd / Skýrsla FAO
Utan úr heimi 16. september 2026

3% ræktunarlands aðgengilegt og nothæft

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Í nýju mati Matvæla- og land- búnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) kemur fram að aðeins 3% ræktunarlands á Gaza-strönd sé bæði aðgengilegt og nothæft til ræktunar matvæla. Bændur í Palestínu hafa lítið landsvæði til afnota og skert aðgengi að gróðurhúsum vegna aðgengishafta af hálfu Ísraelshers og vegna skemmda á ræktunar- landi og aðbúnaði.

Auk þess sem palestínskir bændur eru í stöðugri lífshættu við að vinna á opnum svæðum vegna árása Ísraelshers hefur landbúnaður þar í landi liðið skort á vatni, fræjum, fóðri, áburði, eldsneyti, vökvunarbúnaði og öðrum framleiðsluvörum. Bændur sem stunda dýrabúskap skortir einnig aðgengi að dýralæknaþjónustu og lyfjum.

448 hektarar nothæfir og óskemmdir

Í skýrslunni kemur fram að í júní á þessu ári var 4.091 hektari, eða 27% ræktunarlands Gaza, aðgengilegt en aðeins 448 hektarar af því svæði, eða 3%, voru bæði aðgengilegir og nothæfir. Þetta er mikil minnkun frá því í fyrra en í október 2025 var 601 hektari aðgengilegur og óskemmdur.

Í skýrslu FAO kemur fram að breytingarnar sem sjást frá því október 2025 og fram í júní 2026 stafa mestmegnis af skertu aðgengi, ekki af eyðileggingu. Á Rafah svæðinu er mestur aðgengisskortur að ræktunarlandi þar sem 97,2% alls ræktunarlands og 98,4% gróðurhúsa eru óaðgengileg palestínskum bændum. Mesta eyðilegging á landbúnaðarlandi og innviðum er enn á Norður-Gaza og Gaza.

Fæðuöryggi ekkert án landbúnaðar

Mikilvægt er að landbúnaður í Palestínu nái sér aftur á strik til þess að stuðla að fæðuöryggi íbúa. Fæðuskortur er á svæðinu og hungursneyð. Innflutt matvara er takmörkuð af Ísraelsher og samkvæmt fréttamiðli Guardian er mikið af þeirri matvöru sem kemst á leiðarenda næringarsnauð. 

Rein Paulsen, framkvæmdastjóri skrifstofu neyðaraðstoðar FAO, segir á fréttavef FAO að ef bændum er ekki veitt aðstoð sem fyrst og öryggi til að sinna landbúnaði minnka tækifærin til að koma matvælaframleiðslu á réttan kjöl. Ræktunarland sem hefur verið eyðilagt þarf að byggja upp aftur og gera það ræktanlegt sem getur tekið tíma. Hann bendir á að bændur á Gaza hafa endurtekið sýnt fram á að framleiðsla sé möguleg ef þeir fá öruggt aðgengi að landi.

Innlend ræktun skiptir sköpum

Á fréttamiðli Guardian í ágústlok var tekið viðtal við palestínska grænmetisbóndann Abu Rabee í borginni Beit Lahiya. Hann þurfti að endurrækta land sitt eftir að það var lagt í eyði af Ísraelsher. Nú ræktar hann eggaldin, tómata og paprikur sem hann selur til staðbundinna heildsala og deilir græðlingum og fræplöntum til annarra bænda og fólks á svæðinu. Ræktunin hefur gengið vel miðað við takmarkað aðgengi að verkfærum og vatni og hefur að sögn Abu skipt sköpum fyrir matvælamarkað á svæðinu. Fyrr á þessu ári kostaði eggaldin 40 sikla á kílóið, eða 1.606 krónur, en nú er verðið komið niður í 2 sikla á kílóið, sem er um 80 íslenskar krónur.

Margar áskoranir eru þó enn fyrir hendi. Auk þess sem talað er um hér að ofan eru meindýr vandamál jafnt sem hreinlæti. Abu telur að árásir á bændur hafi einnig orðið tíðari þar sem bændur stuðli að sjálfbærari innviðum og viðhaldi samfélaginu í Palestínu. 

Skylt efni: Palestína | gaza

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f