Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 mánaða.
2025 metár hjá Herjólfi
Fréttir 5. febrúar 2026

2025 metár hjá Herjólfi

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Aldrei áður hafa jafn margir farið með Herjólfi á milli lands og Eyja eins og árið 2025 en þá voru 441.626 farþegar fluttir með ferjunni.

Farþegatölurnar hafa risið á milli ára. „Það er alveg óhætt að segja að árið 2025 hafi verið Herjólfi mjög hagfellt. Það voru miklir flutningar, bæði af farþegum og farartækjum. Heimamenn voru minna á ferðinni en árin á undan en ferðamenn þeim mun fleiri. Hér á árunum fyrir Covid var algengt að farþegafjöldinn væri í kringum 350 þúsund – en síðustu þrjú ár hefur farþegafjöldinn verið vel yfir fjögur hundruð þúsund og við reiknum með auknum fjölda með fleiri ferðum,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs.

En á Ólafur einhverja skýringu á metinu á síðasta ári?

„Ég held að það sé óhætt að fullyrða að skýringarnar séu margþættar. Undanfarin ár hafa Vestmannaeyjar verið markaðssettar sem spennandi áfangastaður og náttúruperla og ég er ekki í nokkrum vafa um að sú vinna hafi verið að skila sér undanfarin ár. Auk þess var veðurfarið frá vori fram á haust mjög gott og við sjáum það á traffíkinni í Herjólfi að veður hefur mikið að segja. Því þegar sólin skín eru alltaf miklu meiri flutningar en í rigningu og þoku. Auk þess hefur Herjólfur ohf., aukið þjónustuna með því að sigla átta ferðir yfir háannatímann. Við ætlum að lengja átta ferða tímabilið og byrjum þá um sjómannadagshelgina og höldum í það fyrirkomulag frá byrjun júní fram yfir miðjan ágúst. Þannig að við erum tilbúin til að slá ný met á þessu ári,“ segir Ólafur Jóhann, hæstánægður með hvað gengur vel með Herjólf.

162 þjóðerni

Þess má geta að um 127 þúsund af farþegunum á síðasta ári voru með lögheimili í Vestmannaeyjum, álíka stór hópur eru Íslendingar með lögheimili annars staðar, en um 40% eru útlendingar, langstærsti hlutinn Bandaríkjamenn, um 13,7%, næst eru Þjóðverjar, sem voru aðeins rúmlega 3% farþega. En alls voru farþegar Herjólfs á árinu 2025 af 162 þjóðernum.

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...