Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Dráttarvél fór niður um ís og bóndinn skreið út um afturrúðuna
Mynd / Björgunarfélagið Blanda
Líf og starf 6. febrúar 2019

Dráttarvél fór niður um ís og bóndinn skreið út um afturrúðuna

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir

„Mér varð ekki meint af, fékk smávegis vatn ofan í annað stígvélið, annað var það nú ekki,“ segir Páll Þórðarson, bóndi á Sauðanesi, sem lenti í því að missa dráttarvél sem hann ók eftir Svínavatni niður um ísinn.

Páll kveðst áður hafa ekið eftir vatninu nokkrar ferðir og þá verið í lagi með ísinn, en af einhverjum ástæðum hefði hann verið veikari fyrir á þessum stað en annars staðar. „Það var frekar grunnt á þessum slóðum og ég met það ekki svo að ég hafi verið hætt kominn, þetta er bara óhapp sem ég komst óskaddaður frá,“ segir hann. Páll náði að koma sér út um afturrúðuna áður en vélin sökk.

Björgunarsveitin Blanda á Blönduósi var kölluð út og fór vaskur hópur félaga með tæki og tól á staðinn og hóf aðgerðir til að bjarga vélinni upp úr vatninu. Vélin var um það bil 20 metra frá landi og stóð um það bil helmingur hússins upp úr vatninu.

Björgunarsveitarmenn mættir á svæðið með beltagröfu Steypustöðvar Skagafjarðar ehf. 

Beltagrafa braut sér leið að vélinni

Brugðið var á það ráð, eftir að aðstæður höfðu verið metnar, að fá lánaða beltagröfu sem er í eigu Steypustöðvar Skagafjarðar ehf. og stóð við Laxárvirkjun. Án hennar hefði aðgerðin tekið mun lengri tíma með keðjusögum og öðrum verkfærum. Beltagrafan braut sér leið í gegnum ísinn að vélinni og var hún að því búnu dregin að landi.

„Þetta fór allt eins vel og það gat farið og er dráttarvélin nú komin inn á verkstæði í afvötnun og þurrkun,“ segir í Facebook-færslu Björgunarsveitarinnar Blöndu.

Páll hefur fengið vélina í hendur á ný en kveðst ekki vita enn um tjón, enn sé óljóst hvort rafkerfið hafi þolað að blotna. 

Ást á tímum Bænder
Líf og starf 9. júlí 2026

Ást á tímum Bænder

Þetta frumstæða afl sem býr í okkur öllum og tekur yfir án þess að við fáum nokk...

Byrjandi leggur skúrk
Líf og starf 8. júlí 2026

Byrjandi leggur skúrk

Byrjendur í bridds fara stundum varlegar í hindranasagnir en hinir sem lengra er...

Skáksumarið hafið
Líf og starf 7. júlí 2026

Skáksumarið hafið

Skáksumarið 2026 er hafið með pomp og prakt. Teflt er mikið hérlendis ásamt því ...

Vísnahornið
Líf og starf 7. júlí 2026

Vísnahornið

Nú snýst margt um farsímanotkun og net í samskiptum manna á milli. Guðmundur Þor...

Skoðað í pakkann
Líf og starf 3. júlí 2026

Skoðað í pakkann

Á Alþingi árið 1730 bauð presturinn í Reykjadal í Hrunamannahreppi amtmanni og S...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 29. júní 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er lausnin á vísnagátunni úr 12. tölublaði Bændablaðsins.

Lausn á myndagátu í 12. tbl
Líf og starf 29. júní 2026

Lausn á myndagátu í 12. tbl

Núna báðum við lesendur um að bera kennsl á þessa húsaþyrpingu þar sem ekki hefu...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 25. júní 2026

Stjörnuspá vikunnar

Krabbinn fær óvæntar upplýsingar sem leggjast þungt á hann, en þá er gott að min...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f