Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Sýnidæmi um breytingu á fjárhúsi þar sem gólf og garðar eru uppfærð og innra skipulagi hússins breytt.
Sýnidæmi um breytingu á fjárhúsi þar sem gólf og garðar eru uppfærð og innra skipulagi hússins breytt.
Skoðun 8. september 2026

Tímanleg hönnun sparar tíma við fjárfestingastuðningsumsóknir

Höfundur: Anna Lóa Sveinsdóttir
Anna Lóa Sveinsdóttir.

Bændur sem hyggjast sækja um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda í nautgripa- eða sauðfjárrækt þurfa að huga vel að undirbúningi umsóknar. Samkvæmt reglugerðum um stuðning í nautgriparækt nr. 348/2022 og sauðfjárrækt nr. 144/2022 eru greidd framlög vegna framkvæmda sem stuðla að bættum aðbúnaði gripa, hagkvæmari búskaparháttum og aukinni umhverfisvernd.

Umsóknarfrestur vegna stuðningsins er 15. mars ár hvert fyrir sauðfjárrækt og 31. mars fyrir nautgriparækt. Framkvæmdir sem eru eldri en 12 mánaða eru ekki gjaldgengar. Miðað við núgildandi búvörusamninga getur stuðningur að hámarki numið 40% af stofnkostnaði framkvæmdar, en kostnaður vegna kaupa á tækjabúnaði er ekki styrkhæfur. 

Helstu fylgiskjöl með umsókn eru:

  • Sundurliðuð kostnaðar- og framkvæmdaáætlun með verklýsingu og tímasettri verkáætlun, áfangaskipt ef framkvæmd nær yfir fleiri en eitt ár.
  • Byggingarleyfi eða staðfesting byggingarfulltrúa á að byggingarleyfis sé ekki krafist.
  • Samþykktar byggingarteikningar fyrir nýbyggingar eða þar sem byggingarleyfi er krafist. Aðbúnaðarteikningar geta dugað þar sem eingöngu er verið að breyta innviðum bygginga.
  • Leyfi þinglýsts eiganda jarðar fyrir framkvæmd ef eigandi er ekki umsækjandi.

RML hefur á undanförnum árum aðstoðað bændur við að koma hugmyndum sínum á blað, bæði vegna nýframkvæmda og endurbóta á eldri byggingum. Sú aðstoð getur meðal annars falist í gerð aðbúnaðarteikninga, eða grunnteikninga sem verkfræðistofur geta nýtt við frekari úrvinnslu samþykktra byggingarteikninga, auk áætlanagerðar, umsóknarskila og frágangs lokaskýrslna við verklok. 

Umfjöllunin hér á eftir snýr því fyrst og fremst að aðbúnaðar- teikningum og undirbúningi þeirra, en ekki öllum þáttum fjárfestingastuðningsumsóknar.“ 

Verkferlið við aðbúnaðarteikningar

Góður undirbúningur getur sparað bæði tíma og kostnað þegar kemur að hönnun og útfærslu framkvæmda. Ferlið hefst yfirleitt á samtali við bónda um hugmyndir, markmið framkvæmdar og þann gripafjölda sem húsnæðið á að þjóna.

  1. Farið er yfir fyrirliggjandi gögn, svo sem byggingarteikningar, myndir og aðrar upplýsingar um núverandi húsakost.
  2. Ef teikningar eru ekki til eða upplýsingar vantar getur þurft að mæla húsið upp, taka myndir og skrá helstu forsendur á staðnum, mögulega með heimsókn ráðunauts.
  3. Teiknaður er grunnur af byggingunni og út frá honum unnar fyrstu tillögur að breyttu skipulagi og bættum aðbúnaði.
  4. Tillögurnar eru sendar bónda til yfirferðar, oft sem skjáskot í tölvupósti, og síðan ræddar og lagfærðar eftir þörfum.
  5. Þegar ásættanleg lausn liggur fyrir er teikningin kláruð og afhent sem pdfskjal með tölvupósti.
  6. Ef krafist er samþykktrar byggingarteikningar getur bóndi sent aðbúnaðarteikninguna áfram til verkfræðistofu sem grunn að frekari úrvinnslu.

Samskipti milli teiknara RML og verkfræðistofu geta síðan átt sér stað sé þess óskað. Mælt er með slíku samstarfi þegar við á, þar sem fagþekking hvors aðila nýtist bóndanum vel og eykur líkur á að niðurstaðan verði bæði raunhæf og vel sniðin að forsendum viðkomandi bús.

Bændur sem óska eftir aðstoð við aðbúnaðarteikningar geta haft samband við Önnu Lóu Sveinsdóttur í síma 516 5006 eða með tölvupósti á als@rml. is. Vegna annarra mála sem tengjast aðbúnaðarhönnun er einnig hægt að hafa samband við Sigurð Guðmundsson í síma 516 5040 eða með tölvupósti á sg@rml.is. Mikilvægt er að óska eftir aðstoð með nægilegum fyrirvara svo ferlið fái þann umhugsunar- og úrvinnslutíma sem þarf til að finna heppilegustu lausnina fyrir hvert bú. Mælt er með að hefja undirbúning að minnsta kosti 5–6 mánuðum fyrir skilafrest umsókna.

Höfundur er ráðunautur á rekstrar- og nýsköpunarsviði RML.

Skylt efni: RML | umsóknir

Tryggjum raunverulegt fæðuöryggi
Skoðun 23. október 2026

Tryggjum raunverulegt fæðuöryggi

Nýverið greip ég nýútkomna bók eftir bandaríska höfundinn Annie Jacobsen, en sú ...

Útskýringar á andstöðu við laxeldi í sjókvíum á Seyðisfirði
Skoðun 21. október 2026

Útskýringar á andstöðu við laxeldi í sjókvíum á Seyðisfirði

Öldum saman hafa íbúar fjarðarins búið við margs konar hættur sem náið sambýli v...

Nýjasta þjóðaríþróttin
Skoðun 21. október 2026

Nýjasta þjóðaríþróttin

Það er farið að verða erfitt fyrir Seyðfirðinga að verjast þeirri tilfinningu að...

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna
Skoðun 16. október 2026

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna

Í umfjöllun Bændablaðsins um innflutning frjóvgaðra laxahrogna frá AquaGen Profu...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 13. október 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Íslenskur landbúnaður hefur um langt árabil glímt við þá þversögn að geta framle...

Nóg til og meira frammi?
Skoðun 12. október 2026

Nóg til og meira frammi?

Það getur verið erfitt að taka umræðuna um fæðuöryggi alvarlega þegar hillur mat...

Að lifa áhugaverða tíma
Skoðun 9. október 2026

Að lifa áhugaverða tíma

Einhvers staðar á það að vera hin versta bölvun að óska óvini sínum þess að hann...

Landgræðsluskóli GRÓ á þingi Eyðimerkursamningsins
Skoðun 7. október 2026

Landgræðsluskóli GRÓ á þingi Eyðimerkursamningsins

Ísland tók þátt í 17. þingi aðildarríkja Samnings Sameinuðu þjóðanna um varnir g...