Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Stefnubreyting hjá SVÞ? – Fögnum því
Skoðun 6. apríl 2020

Stefnubreyting hjá SVÞ? – Fögnum því

Höfundur: Sigmar Vilhjálmsson, talsmaður FESK, Félag eggjabænda, svínabænda og kjúklingabænda á Íslandi.

Formaður Samtaka verslunar og þjónustu ritaði góða grein í Morgunblaðið þann 4. apríl sl. Yfirskrift greinarinnar var „Höldum áfram – samstaðan mun fleyta okkur langt“ og fjallaði um hversu sterk og þróttmikil þjóð okkar hefur verið í gegnum tíðina. Einnig kemur hann inn á mikilvægi þess að halda uppi daglegu lífi eins og versla á netinu. Með því að versla á netinu þá erum við öll að leggja okkar að mörkum til að halda fyrirtækjum gangandi og neikvæðum afleiðingum COVID-faraldursins niðri.

Það er í sjálfu sér allt rétt sem formaðurinn segir í þessari grein og full ástæða til að taka undir hvert orð. En þar sem þessi grein er rituð undir merkjum SVÞ þá óneitanlega leiðir maður hugann að því hvernig félagsmenn SVÞ haga sínum málum í þessum efnum sjálfir.

Í röðum félagsmanna eru stærstu innflytjendur á matvælum sem hafa höggvið verulega í íslenska framleiðslu matvæla með tilheyrandi uppsögnum og niðurskurði í innlendum landbúnaði. Í röðum félagsmanna SVÞ eru fyrirtæki sem hafa kostað gríðarlega miklu til við að halda uppi kröfum um innflutning á enn meira af matvælum en þegar er verið að flytja inn. Ef vilji félagsmanna SVÞ myndi ganga eftir þá væri landbúnaður á Íslandi með öllu lagður niður. Mögulega er þessi grein formanns SVÞ stefnubreyting í þessum efnum og því ber þá að fagna.

Það er óskandi að síðasta málsgrein formannsins sé merki um nýja stefnu SVÞ í innlendri framleiðslu, verslun og þjónustu. Orðrétt segir: „Sýnum í verki samtakamátt okkar og skiptum við íslensk fyrirtæki. Með því hjálpum við fyrirtækjunum að komast yfir erfiðasta hjallann og leggja þar með grunn að kröftugri viðspyrnu atvinnulífsins þegar aftur birtir til“.

Það er óskandi að þessi grein sé ekki bara orðin ein heldur verði framkvæmd í verki. Ekki bara núna á COVID-tímum, heldur um alla framtíð. Enda mun „samstaðan fleyta okkur langt,“ svo ég vitni aftur í formanninn.

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna
Skoðun 16. október 2026

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna

Í umfjöllun Bændablaðsins um innflutning frjóvgaðra laxahrogna frá AquaGen Profu...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 13. október 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Íslenskur landbúnaður hefur um langt árabil glímt við þá þversögn að geta framle...

Nóg til og meira frammi?
Skoðun 12. október 2026

Nóg til og meira frammi?

Það getur verið erfitt að taka umræðuna um fæðuöryggi alvarlega þegar hillur mat...

Að lifa áhugaverða tíma
Skoðun 9. október 2026

Að lifa áhugaverða tíma

Einhvers staðar á það að vera hin versta bölvun að óska óvini sínum þess að hann...

Landgræðsluskóli GRÓ á þingi Eyðimerkursamningsins
Skoðun 7. október 2026

Landgræðsluskóli GRÓ á þingi Eyðimerkursamningsins

Ísland tók þátt í 17. þingi aðildarríkja Samnings Sameinuðu þjóðanna um varnir g...

Lárublómin í Færeyjum
Skoðun 2. október 2026

Lárublómin í Færeyjum

Arnþrúður Lára Pétursdóttir var fædd 6. apríl 1898 á Fremrihlíð, Hofssókn á Vopn...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 28. september 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Stundum þarf ekki stóra rannsókn til að afhjúpa áhugaverðan veruleika. Í síðasta...

Landsbyggðin og jafnræði
Skoðun 28. september 2026

Landsbyggðin og jafnræði

Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna það þykir eðlilegt að auknar álögur le...