Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Sjálfbær uppbygging ferðaþjónustu á landinu öllu
Mynd / Úr einkasafni
Skoðun 15. janúar 2020

Sjálfbær uppbygging ferðaþjónustu á landinu öllu

Höfundur: Arnheiður Jóhannsdóttir, talsmaður Markaðsstofa landshlutanna og framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands

Ferðaþjónustan á landinu öllu kemur saman árlega á Mannamótum Markaðsstofa landshlutanna.

Sýningin hefur það að markmiði að efla tengsl á milli fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu og fyrirtækja allra landshluta auk þess að kynna vel nýjungar á svæðunum og auka sölumöguleika. Þennan frábæra dag er auðvelt að sjá hvers vegna erlendir ferðamenn flykkjast til landsins og hvers vegna áhuginn á Íslandi eykst ár frá ári. Kraftur og sköpunargleði einkennir fólkið í ferðaþjónustu sem sér tækifæri hvert sem litið er. Ótrúlegt er að sjá fjölbreytni og sérstöðu þeirrar þjónustu sem í boði er.  

Mikilvægt að tryggja áframhaldandi vöxt

Það er gríðarlega mikilvægt ef tryggja á áframhaldandi vöxt ferðaþjónustunnar og góð áhrif hennar á hagvöxt í landinu að hlúa vel að þeim frumkvöðlum sem hafa drifið áfram þróunina undanfarin ár. Þetta fólk og þeirra fyrirtæki hafa staðið af sér miklar breytingar, farið í gegnum mjög hraðan vöxt sem fylgdi mikil þörf fyrir innviðauppbyggingu, álag á þjónustu, þróun, breytingar í starfsmannamálum og áhersla á gæði. Mikil áhersla hefur verið á að gera Ísland að heilsárs ferðaþjónustulandi og hafa ferðaþjónustuaðilar staðið vaktina varðandi það að byggja upp opnunartíma á veturnar þegar lítið hefur verið að gera á mörgum svæðum.

Komum erlendra ferðamanna fækkaði um 329 þúsund frá árinu 2018 eða um 14% en þetta er í fyrsta skipti sem sést hefur fækkun á níu ára tímabili. Hlutfallslega var fækkunin mest í maí og september sem er einmitt sá tími sem lögð hefur verið áhersla á að byggja upp til að lengja ferðamannatímabilið. Enn er það svo að á stórum hluta landsins er mikil árstíðarsveifla. Á sama tíma erum við að heyra umræðu erlendis frá um að Íslands sé orðið fullt og að ekki sé hægt að bæta fleiri gestum við. Staðreyndin er hins vegar sú að nóg er eftir að vannýttum innviðum vítt og breitt um landið og á mörgum svæðum eru spennandi áfangastaðir nánast ósnertir allt árið. Tækifærin eru því óþrjótandi fyrir ferðaþjónustuna og lykilatriði að byggja hana þannig upp að landið allt hafi ávinning af. Með stóraukinni kröfu ferðamanna um sjálfbæra uppbyggingu og þjónustu er þetta mikilvægara en nokkru sinni fyrr enda hefur dreifing ferðamanna um landið og stýring gríðarleg áhrif á vernd náttúrunnar, öryggi ferðamanna, uppbyggingu atvinnulífs, þjónustu í byggðum og ekki síst ánægju heimamanna.

Uppbygging innviða framundan

Samhliða mikilli nýsköpun og þróun ferðaþjónustufyrirtækja er framundan mikil vinna stjórnvalda við að byggja upp samgöngur og innviði í landinu þannig að ferðaþjónustan geti vaxið og dafnað á sjálfbæran hátt. Ferðamenn kalla á að komast á aðra staði og á öðrum tíma heldur en við erum vön. Stöðugt eru að koma í ljós og að þróast áfram nýir áfangastaðir vítt og breytt um landið sem á örskömmum tíma geta orðið gríðarlega vinsælir og kalla á aukna þjónustu og innviði. Með góðu samstarfi stjórnvalda og ferðaþjónustunnar getum við séð þessa stærstu atvinnugrein þjóðarinnar vaxa og dafna á næstu árum og byggt upp grunn að öflugu atvinnulífi og byggð um allt land á sjálfbæran hátt.

Arnheiður Jóhannsdóttir, talsmaður Markaðsstofa landshlutanna og framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.

Skylt efni: ferðaþjónustan

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna
Skoðun 16. október 2026

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna

Í umfjöllun Bændablaðsins um innflutning frjóvgaðra laxahrogna frá AquaGen Profu...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 13. október 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Íslenskur landbúnaður hefur um langt árabil glímt við þá þversögn að geta framle...

Nóg til og meira frammi?
Skoðun 12. október 2026

Nóg til og meira frammi?

Það getur verið erfitt að taka umræðuna um fæðuöryggi alvarlega þegar hillur mat...

Að lifa áhugaverða tíma
Skoðun 9. október 2026

Að lifa áhugaverða tíma

Einhvers staðar á það að vera hin versta bölvun að óska óvini sínum þess að hann...

Landgræðsluskóli GRÓ á þingi Eyðimerkursamningsins
Skoðun 7. október 2026

Landgræðsluskóli GRÓ á þingi Eyðimerkursamningsins

Ísland tók þátt í 17. þingi aðildarríkja Samnings Sameinuðu þjóðanna um varnir g...

Lárublómin í Færeyjum
Skoðun 2. október 2026

Lárublómin í Færeyjum

Arnþrúður Lára Pétursdóttir var fædd 6. apríl 1898 á Fremrihlíð, Hofssókn á Vopn...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 28. september 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Stundum þarf ekki stóra rannsókn til að afhjúpa áhugaverðan veruleika. Í síðasta...

Landsbyggðin og jafnræði
Skoðun 28. september 2026

Landsbyggðin og jafnræði

Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna það þykir eðlilegt að auknar álögur le...