Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Samráðshópur bænda um loftslagsmál og visthæfan landbúnað
Skoðun 4. apríl 2017

Samráðshópur bænda um loftslagsmál og visthæfan landbúnað

Höfundur: Ari Trausti Guðmundsson
Ég tel augljóst að bændur og búalið á Íslandi hverfi, líkt og svo margir aðrir, æ dýpra með ári hverju inn í loftslagsmálin. 
 
Aukinn skilningur á þróun veðurfars á Íslandi og annars staðar og innilegri óskir grípa um sig; óskir um að sporna við óæskilegum breytingum í veðurfari og ásetningur um að geta brugðist við því sem ekki verður breytt. Svo seint bregst mannkyn við að við munum þurfa að leggja fram mikla vinnu og gríðarlegt fé á heimsvísu næstu áratugi vegna allt of hraðrar og mikillar hlýnunar sem umsvif manna eiga stóran þátt í nú á tímum. Æðruleysi og samstaða skipta þar miklu máli; líka þverpólitísk samstaða og vilji til að leggja hugvit, vinnu og fé af mörkum.
 
Á nýliðnu ársþingi Bændasamtaka á Akureyri kom glöggt fram að umhverfis- og loftslagsmál skipa æ hærri sess í starfi heildar- og starfsgreinasamtaka bænda.
 
Ég nefndi þar í stuttri ræðu að bændur gætu lært af sjávarútvegsgeiranum þegar kemur að samhæfingu viðbragða innan landbúnaðargeirans. Talaði um samráðshópinn Hafið sem stofnaður var 2014. Hann er það sem kallast öndvegissetur og skipaður fulltrúum fjölmargra aðila innan sjávarútvegsins en líka fulltrúum stofnana, fyrirtækja sem koma að sjávarútvegi en teljast ekki innan atvinnugreinarinnar og enn fremur fulltrúi umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Þarna eru útgerðarfyrirtæki, tæknifyrirtæki, háskólar, hagsmunasamtök önnur en Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, orkufyrirtæki, rannsóknarstofnanir, faghópafélög, svo eitthvað sé nefnt. 
 
Myndin sýnir hvað Hafið inniheldur og aðilum fjölgar um þessar mundir. 
 
Á heimasíðu setursins (www.hafid.info) stendur: „Markmið félagsins er að skapa samstarfsgrundvöll fyrir fyrirtæki, opinbera aðila og rannsóknarstofnanir til þróunar á tækni, löggjöf og hverju því sem stuðlar að verndun og sjálfbærri umgengni um hafið. Hafið  leitast við að auka almennan skilning og þekkingu á hafinu og mikilvægi þess. Félagið stendur fyrir samstarfsverkefnum og leitar styrkja til þeirra og starfseminnar í heild sinni, bæði innanlands og erlendis. Hafið er samstarfsvettvangur aðila sem nýta vilja sameinaðan styrk til verndunar hafsins.“
 
Allt er þetta nokkuð skýrt og hægt að spegla yfir á landið og landbúnaðinn. Hafið er rekið fyrir þátttökugjöld og er nú með einn starfsmann og margvísleg verkefni í deiglunni.
 
Til þess að stytta langt mál vil ég halda því fram að bændur geti tekið Hafið sér til fyrirmyndar í grundvallaratriðum og stofnað til öndvegisseturs á sínum forsendum og þeirra sem koma að því að gera greinina vistvænni, sjálfbærari og loftslagsvænni, allt frá Landgræðslunni og LhbÍ til Nýsköpunarmiðstöðvarinnar, MS og annarra eða minni fyrirtækja, auk hagsmunasamtaka.
 
Ari Trausti Guðmundsson
Höfundur er þingmaður VG
í Suðurkjördæmi
Grípum tækifærin í íslenskum landbúnaði
Skoðun 12. júní 2026

Grípum tækifærin í íslenskum landbúnaði

Það var ánægjulegt að undirrita í liðinni viku samkomulag um að framlengja gilda...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 11. júní 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Framlenging búvörusamninga um eitt ár felur í sér mikilvæga festu nú þegar íslen...

Dýraníð í nafni dýraverndar
Skoðun 11. júní 2026

Dýraníð í nafni dýraverndar

Ekki leið mánuður frá innbroti í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi þar til broti...

Saga af tveimur systrum
Skoðun 8. júní 2026

Saga af tveimur systrum

Í ár eru 190 ár liðin frá andláti einnar harmsögulegustu persónu íslenskrar menn...

Hafa ferðamenn áhuga á sveitinni?
Skoðun 8. júní 2026

Hafa ferðamenn áhuga á sveitinni?

Ferðaþjónusta hefur verið mikilvæg stoð í íslensku efnahagslífi um nokkurt skeið...

Katla rumskar 1918
Skoðun 8. júní 2026

Katla rumskar 1918

Það er haustdagur þann. 12 október árið 1918. Kona ein í Álftaveri undirbýr slá...

Asparnálar – algengasti sjaldgæfi sveppurinn á Íslandi?
Skoðun 8. júní 2026

Asparnálar – algengasti sjaldgæfi sveppurinn á Íslandi?

Fjöldi sveppategunda á Íslandi telur í þúsundum en þó er erfitt að segja nákvæml...

Innviðir fyrst, uppstokkun síðar
Skoðun 8. júní 2026

Innviðir fyrst, uppstokkun síðar

Stjórnvöld eiga að læra rétta lexíu af ESA-málinu um dýraleifar: Vandinn er ekki...