Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Guðmundur Þorsteinsson.
Guðmundur Þorsteinsson.
Skoðun 19. júlí 2017

Leyndarhyggja Bændasamtaka Íslands

Höfundur: Guðmundur Þorsteinsson
Í vetur hef ég tvisvar skrifað pistla í Bændablaðið þar sem ég hef gagnrýnt B.Í. fyrir tregðu til að upplýsa bændur um fjárhagsmálefni samtakanna eins og sundurliðaða ársreikninga o.fl. Er skemmst frá því að segja að þar var talað fyrir svo daufum eyrum að um fullkomið heyrnarleysi er að ræða.
 
Þá gerði ég (í Bbl. 23. feb.) athugasemdir við það að bændur skuli skyldir til að kaupa afnot af forritum B.Í. eins og Jörð, Huppu og Fjárvís sem samtökin eiga og hafa frjálsar hendur um verðlagningu á; hafa raunar ákveðið að þeir sem greiða aðildargjaldið til B.Í. fái 30% afslátt af listaverðinu. Ég spurði einnig hvort ráðuneytið hefði samþykkt og staðfest gjaldskrána, en hef engin viðbrögð fengið. 
 
Með eftirgrennslan í ráðuneytinu hef ég komist að því að hægt er að fá takmarkaðan aðgang að þessum forritum á u.þ.b. hálfvirði þar sem unnt er að fullnægja skráningarskyldunni. Og viti menn, þá verðskrá má finna á heimasíðu B.Í. en svo vel er hún falin að starfsmenn Búnaðarsamtaka Vesturlands höfðu t.d. ekki hugmynd um hana þegar ég sagði þeim frá þessu.
 
Ekki fer á milli mála að með þessu ráðslagi eru forsvarsmenn B.Í. að reyna að fá sem flesta til að greiða aðildargjaldið án þess að hafa vitneskju um þennan kost.
 
Við þetta má bæta litlu dæmi um ásælni B.Í. Aldraður bóndi fékk frá samtökunum reikning fyrir afnot af forritinu jord.is. Hann hvorki á tölvu né hefur færni til að nota forritið og hefur því auðvitað ekki óskað eftir að fá aðgang að því. Trúlega eru fleiri í þeirri stöðu.
 
Forsvarsmenn Bændasamtaka Íslands láta í ræðu og riti sem þeir séu sem útspýtt hundsskinn við að gæta hagsmuna bænda en framanritað leiðir í ljós þá ömurlegu staðreynd að þeir eru reiðubúnir til að leggjast býsna lágt til að hafa af þeim fé, á fölskum forsendum ef ekki vill betur til. 
 
Á heimasíðu B.Í. blasir nú við áberandi tilkynning (auðvitað á eftir slagorðinu: Bændasamtökin rækta þinn hag!!!) um að reikningar fyrir jord.is séu á eindaga en ef menn greiða aðildargjaldið, 42.000,- kr. geta þeir náðarsamlegast fengið upphaflegan reikning felldan niður en greiða síðan með afslættinum. Ekki er vikið einu orði að þeim möguleika að fá takmarkaðan aðgang.
 
Nú ættu B.Í. að reyna að klóra aðeins yfir skítinn sinn með því að gera mönnum glögga grein fyrir þeim möguleika að fá takmarkaðan aðgang að þessum forritum og hvað felst nákvæmlega í þeim takmörkunum. Að öðrum kosti tel ég þau rúin allri vild og trausti.
 
Ritað 3. júlí 2017.
Guðmundur Þorsteinsson
Hvað verður um íslenska nautgriparækt fyrstu tíu árin innan ESB?
Skoðun 31. ágúst 2026

Hvað verður um íslenska nautgriparækt fyrstu tíu árin innan ESB?

Umræðan um aðild Íslands að Evrópusambandinu á undanförnum mánuðum hefur verið u...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 28. ágúst 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Hér var um daginn sænskur fyrirlesari, Ingrid Rydberg, sem hefur rekið skrifstof...

Áhættan er  of mikil
Skoðun 27. ágúst 2026

Áhættan er of mikil

Loks er komið að kosningunum sem tekið hafa yfir umræðuna hér á landi í allt sum...

Stór ákvörðun
Skoðun 27. ágúst 2026

Stór ákvörðun

Ég held að þegar upp verði staðið hafi margt gott fengist út úr líflegri umræðu ...

Íslenskir bændur ættu að segja já til að sjá
Skoðun 25. ágúst 2026

Íslenskir bændur ættu að segja já til að sjá

Ef markmið okkar Íslendinga og íslenskra bænda er öflug matvælaframleiðsla, blóm...

Sjálfsáin stafafura metin á Suður- og Vesturlandi
Skoðun 25. ágúst 2026

Sjálfsáin stafafura metin á Suður- og Vesturlandi

Ný rannsókn við Háskóla Íslands sýnir að sjálfsáning stafafuru á Suður- og Vestu...

Blesgæsir í vanda
Skoðun 24. ágúst 2026

Blesgæsir í vanda

Blesgæs er reglulegur viðkomufugl á Íslandi að vori og hausti. Hún hefur hér við...

Forsendur refaveiða
Skoðun 24. ágúst 2026

Forsendur refaveiða

Í grein í Morgunblaðinu 25.07 síðastliðinn er því slegið upp að forsendur fyrir ...