Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Hreinsun
Lesendarýni 2. maí 2016

Hreinsun

Höfundur: Sigríður Jónsdóttir
Aðalfundur Ístex var haldinn í Mosfellsbæ þann 6. apríl síðastliðinn. Á þeim fundi bar fátt til tíðinda annað en það að Landssamtök sauðfjárbænda, LS, tilnefndu nýjan mann í stjórn. 
 
Undanfarin fjögur ár hef ég setið í stjórn Ístex fyrir LS. Ég tel mig hafa unnið sæmilega að hagsmunum ullarverksmiðjunnar, LS og sauðfjárbænda þennan tíma allan. Og ég tel líka að vera mín í stjórninni hafi ekki verið til mikillar bölvunar. Þess vegna gaf ég kost á mér til að vera áfram í stjórn.
 
Við kosningu til stjórnar á aðalfundi Ístex hlaut tilnefningur LS fleiri atkvæði en ég og ég geri að sjálfsögðu engar athugasemdir við þá niðurstöðu. 
 
Hins vegar geri ég athugasemdir við skýringar forystumanna LS um ástæður þess að mér er vikið úr Ístexstjórninni. 
 
Á aðalfundi Ístex er Þórarinn Pétursson beðinn að skýra þessa breytingu. 
Og Þórarinn svarar: 
„... það er þannig að við sem sitjum í stjórn LS teljum að um trúnaðarbrest sé að ræða í samskiptum við Sigríði Jónsdóttur eftir stormasaman vetur.“ 
 
Daginn eftir, á aðalfundi LS, er Þórarinn aftur inntur eftir ástæðunum fyrir brottvikningu minni úr stjórn Ístex. Og aftur gefur Þórarinn Pétursson þá skýringu að um trúnaðarbrest sé að ræða. 
Mér verður varla ætlað að sitja undir þessum dylgjum án þess að svara þeim. 
 
Mér vitanlega felst trúnaðarbrestur milli mín og LS aðeins í því að ég hef ekki verið sátt við búvörusamningana og að ég hef ekki legið á þeirri skoðun minni. 
 
Ég get verið í fýlu yfir að fá ekki lengur að vera í stjórn Ístex. Og þá fýlu get ég átt við sjálfa mig. En bændaforystan stendur nú frammi fyrir því að þurfa að vinna að hagsmunum allra bænda, eftir kosningar um búvörusamninga þar sem fjórðungur kúabænda og meira en þriðjungur sauðfjárbænda sagði nei. 
 
Nú hlýtur að vera forgangsverk­efni að hreinsa andrúmsloftið og skapa skilyrði til einhverrar samstöðu og sáttar meðal bænda og milli bænda og bændaforystunnar.
 
Bændaforystan getur gripið til þess ráðs að hreinsa til í kringum sig og losa sig við þá neikvæðu og efagjörnu. Sagan hefur sýnt að hreinsanir eru fyrsta og annað verk þeirra sem vilja stjórna að eigin geðþótta. 
 
Bændaforystan hefur reynt að gera hreint fyrir sínum dyrum með því að biðjast sléttrar afsökunar á sínum eigin misgjörðum og trúnaðarbrestum gagnvart umbjóðendum sínum í stétt sauðfjárbænda. Formaður Bændasamtakanna greip til þess ráðs á LS fundinum um daginn. Og virðist ætla að sleppa með það. Fulltrúar á aðalfundi LS endurkusu hann í kjölfarið sem fulltrúa sinn á Búnaðarþing!
 
Ég hef aldrei áður í minni búskapartíð skammast mín fyrir að vera aðili að Bændasamtökunum. Þjóðfélagið allt virðist reyndar engu skárra, en það er engin afsökun. Nú verður að endurskoða siðferðið í þessu samfélagi okkar og það verður ekki gert nema innan frá. 
 
Segið hreint út í hverju trúnaðarbrestur LS og Sigríðar Jónsdóttur liggur. Ef það er málefni sem ekki þolir almenna umfjöllun, dugar mér að frétta af því svona prívat og persónulega. Og þá mun ég biðjast afsökunar. Segja sorrý eins og Sindri. 
 
Sigríður Jónsdóttir
sauðfjárbóndi Arnarholti.
Athugasemdum beint til utanríkisráðherra
Skoðun 8. júlí 2026

Athugasemdum beint til utanríkisráðherra

Í síðasta tölublaði Bændablaðsins fjallar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrve...

Sjálfbært Ísland – og hvað með það?
Skoðun 7. júlí 2026

Sjálfbært Ísland – og hvað með það?

Sögulega hafa Íslendingar þurft að hámarka verðmæti allra sinna afurða, frá því ...

Ungt fólk og nýsköpun  í hestageiranum
Skoðun 6. júlí 2026

Ungt fólk og nýsköpun í hestageiranum

Við ferðamáladeild Háskólans á Hólum er stunduð kennsla, rannsóknir og tekið þát...

Stærsta samvinnuhreyfingin
Skoðun 6. júlí 2026

Stærsta samvinnuhreyfingin

Þjóðin kýs um það í lok ágúst hvort taka eigi aftur upp viðræður um aðild að Evr...

Tómarúmið
Skoðun 26. júní 2026

Tómarúmið

Nýlega sat umhverfisráðherra fyrir svörum í þættinum Græna borðið á Samstöðinni ...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 26. júní 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Verð á innfluttum kartöflum hefur ekki lækkað þó að innflutningstollar hafi stað...

Vöndum okkur í umræðunni
Skoðun 26. júní 2026

Vöndum okkur í umræðunni

Sólmánuður hófst í upphafi þessarar viku, tíundu viku sumars. Margir bændur stun...

„Af hverju að banka?“
Skoðun 25. júní 2026

„Af hverju að banka?“

Eins og kunnugt er hefur ríkisstjórnin ákveðið að spyrja þjóðina hvort hún vilji...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f