Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Hið ómögulega
Mynd / smh
Skoðun 13. júní 2017

Hið ómögulega

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Það er athyglisvert að fylgjast með þróun verslunar á Íslandi þessa dagana. Þar er eitthvað að gerast sem okkur hefur verið talin trú um að væri utan marka þess mögulega.
 
Fyrir skömmu var opnuð stórverslun í Garðabæ frá Costco Wholesale Corporation. Fyrirtækið hóf starfsemi sína árið 1983 í Seattle í Bandaríkjunum. Á vefsíðu fyrirtækisins segir að allar verslanir Costco byggi á meðlimaaðild. 
 
Þegar verslunin í Garðabæ var opnuð undir lok maí var engu líkara en Íslendingar hefðu aldrei séð dagvöruverslun fyrr. Allar götur síðan hefur nánast verið fullt út úr dyrum og öll bílastæði á stóru svæði, líka hjá stórverslun IKEA, hafa verið troðfull af bílum viðskipavina Costco. 
 
Talsmenn verslunar á Íslandi og einkum fulltrúar Samtaka verslunar og þjónustu hafa af kurteisi sagst fagna þessari nýju samkeppni. Samt dylst engum að mikill órói er hjá eigendum gömlu verslanarisanna á íslenska markaðnum. Hjá flestum verslunum hefur tilkoma Costco haft þau áhrif að verð hefur verið lækkað á ýmsum varningi, jafnvel um tugi prósenta. Eitthvað sem alla tíð hefur verið fullyrt við neytendur að væri ómögulegt. Því hefur gjarnan verið borið við að smæð íslenska markaðarins kallaði á hærra vöruverð, einnig dýrir flutningar og fjarlægð frá helstu viðskiptalöndum.
 
Í mörg undanfarin ár hafa samtök verslunarinnar hamast í fjölmiðlum við að „upplýsa“ fávísa alþýðu landsins um að helsta ástæðan fyrir háu matvöruverði væri ómögulegt landbúnaðarkerfi, hátt verð frá bændum og það sem sumir hafa kallað ofurtolla á matvæli. Reynt hefur verið að telja almenningi trú um að kerfið á Íslandi væri einstakt hvað þetta varðar. Upplýstir neytendur vita þó mæta vel að sambærilegt fyrirkomulag er haft á hvað varðar  stuðning við innlenda matvælaframleiðslu í öllum okkar helstu viðskiptalöndum.  
 
Talsmönnum verslunarinnar hefur á liðnum árum tekist að knýja fram tollaniðurfellingar á ýmsum vörum. Þrátt fyrir það gekk ansi hægt að skila lækkuðu innkaupsverði sem þar fékkst áfram til neytenda. Var þar ýmsu borið við, eins og lagerstöðu og ýmsum innlendum kostnaðarþáttum. Í allri þeirri orðræðu hafa menn samt forðast í lengstu lög að ræða kostnað vegna mikillar yfirbyggingar í íslenskum verslunum og kostnað við óhóflegt verslunarhúsnæði. Á þessum forsendum hefur verslun á Íslandi haldið uppi háu vöruverði með miklu hærri álagningu en eðlilegt getur talist. Þetta er nú að koma í bakið á íslensku verslunarrisunum um leið og erlend verslunarkeðja sýnir fram á að álagning þarf ekki að vera í hundruðum prósenta. Forsvarsmenn verslunar á Íslandi hafa með sinni óbilgirni verið besta auglýsingin fyrir Costco sem hugsast getur. 
 
Viðbrögð sumra verslunareigenda hefur samkvæmt áreiðanlegum heimildum verið að sniðganga íslenska birgja sem voga sér að eiga viðskipti við Costco. Neytendur hafa því orðið varir við að ákveðin vörumerki sjást ekki lengur í sumum verslunum. 
 
Costco selur matvörur eins og margt annað. Þar er m.a. á boðstólum kjöt frá íslenskum bændum, oft að því er virðist á þokkalegu verði. Þar eru líka á boðstólum lyf á verði sem Íslendingar hafa aldrei áður kynnst í innlendum apótekum. Vondir bændur og vont landbúnaðarkerfi á Íslandi, vondir tollar og lítill markaður eru því greinilega ekki ástæðan fyrir því að Costco getur boðið mun lægra verð á flestum vöruflokkum en kollegar þeirra á Íslandi. Kannski íslenskir stórkaupmenn fari að átta sig á því að það dugar heldur ekki lengur að kenna íslenskum landbúnaði um hátt matvælaverð á Íslandi. 
Nýir búvörusamningar verða að styðja við íslenska nautakjötsframleiðslu
Skoðun 4. júní 2026

Nýir búvörusamningar verða að styðja við íslenska nautakjötsframleiðslu

Íslensk nautakjötsframleiðsla stendur á tímamótum. Á sama tíma og eftirspurn eft...

Alþjóðlegi mjólkurdagurinn 2026
Skoðun 1. júní 2026

Alþjóðlegi mjólkurdagurinn 2026

Alþjóðlegi mjólkurdagurinn er haldinn þann 1. júní ár hvert. Alþjóðlegi mjólkurd...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 29. maí 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Á Ítalíu hafa þau mafíuna. Við höfum kynnst henni í gegnum Al Pacino og Robert D...

Matvælaframleiðsla í skugga síaukins kostnaðar
Skoðun 29. maí 2026

Matvælaframleiðsla í skugga síaukins kostnaðar

Á undanförnum árum hefur ítrekað verið gripið til umfangsmikilla „björgunarpakka...

Tölum íslensku um matvælaverð
Skoðun 29. maí 2026

Tölum íslensku um matvælaverð

Umræða um möguleg áhrif aðildar Íslands að ESB hefur tekið sig upp aftur nú að l...

Hjörtun sem slá í Garðyrkjuskólanum
Skoðun 22. maí 2026

Hjörtun sem slá í Garðyrkjuskólanum

Nokkuð hefur borið á fréttum um dapurt ástand á hluta skólabygginga Garðyrkjuskó...

Fráleitar hugmyndir um einkavæðingu RARIK og Landsnets
Skoðun 22. maí 2026

Fráleitar hugmyndir um einkavæðingu RARIK og Landsnets

Upp á síðkastið hefur borið nokkuð á umræðu um einkavæðingu orkufyrirtækja. Sjál...

Notkun GPS tækja  í eftirleitum
Skoðun 22. maí 2026

Notkun GPS tækja í eftirleitum

Við eftirleitir fer oft mun meiri tími í að finna kindurnar en að koma þeim í að...