Angus-holdanaut frá NautÍs fædd 2025
Á faglegum nótum 30. júní 2026

Angus-holdanaut frá NautÍs fædd 2025

Höfundur: Guðmundur Jóhannesson

Á árinu 2025 fæddist áttundi árgangur Angus-holdagripa á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti. Hér á eftir fer kynning á þeim nautum sem fæddust á ‏því ári. Þessir gripir eru tilkomnir með sæðingu hreinræktaðra Angus-kúa með innfluttu sæði úr Hovin Milorg NO74080, Li‘s Roll in One NO74108, Li‘s Super Nugget NO74116 og Hovin Sokrates NO74119. Hér eru því á ferð hreinræktaðir úrvalsgripir. Á einangrunarstöðinni á Stóra-Ármóti eru gerðar miklar kröfur hvað smitvarnir varðar og hafa þessir gripir nú lokið einangrun og fengið grænt ljós hvað snertir sæðistöku og dreifingu sæðis sem og sölu frá stöðinni.

Holdanautakynið Aberdeen Angus er óþarft að kynna enda kjötgæði þess rómuð og kjötnýting mjög góð. Kynið hentar vel þar sem áhersla er lögð á nýtingu beitar og gróffóðurs ásamt góðum móðureiginleikum, mjólkurlagni og léttan burð. Það hentar því vel í t.d. blendingsrækt þar sem burðarerfiðleikar eru fremur fátíðir.

Nautgriparæktarmiðstöð Íslands (NautÍs) hefur frá upphafi lagt sérstaka áherslu á góða dætraeiginleika þeirra nauta sem notuð hafa verið þar til uppbyggingar á Angus-holdagripastofni hérlendis. Má þar nefna létta burði og kjötgæði að ógleymdum mæðraeiginleikum þó áhersla á kjötgæðaeiginleika hafi aukist með tímanum. Á undanförnum árum hafa því verið notuð naut eins og Li‘s Great Tigre NO74039, First Boyd fra Li NO74033, Hovin Hauk NO74043, Horgen Erie NO74029, Emil av Lillebakken NO74028, Jens av Grani NO74061, Laurens av Krogedal, Ivar fra Li NO74047, Kid av Vølstad NO74068, Manitu av Høystad NO74081 og Hovin Milorg NO74080. Í fyrra fæddust svo tvö naut og þrjár kvígur undan Hovin Milorg, þrjú naut og fjórar kvígur undan Li‘s Roll in One, fjögur naut undan Li‘s Super Nugget og þrjú naut og þrjár kvígur undan Hovin Sokrates.

Feður nautanna

Hovin Milorg NO74080, f. 9. janúar 2017 hjá Espen Krogstad á Nedre Hovin í Tyristrand í Buskerud-fylki. Bærinn er skammt frá vatninu Tyrifjorden, norðaustur af Osló. Faðir Hovin Milorg er First Boyd fra Li NO74033 og hann er því samfeðra Draumi-ET 18402. Móðirin ber það skemmtilega heiti, fyrir okkur hérlendis, Hovin Island NO100000 og er dóttir Hovin Gneis NO60591 sem aftur er hálfbróðir Stóra-Tígurs eða Li‘s Great Tigre NO74039. Hann var svo, eins og margir muna, faðir Vísis-ET 18400, Týs-ET 18401, Baldurs-ET 18403 og Bætis-ET 18404 auk margra af kúnum í fyrsta árgangi Angus-gripa hjá NautÍs.

Hovin Milorg er naut sem gefur mikinn vöxt og góða fituflokkun en holdfyllingarflokkun um meðallag og mæðraeiginleikar eru síðri en margra þeirra nauta sem hafa verið notaðir hjá NautÍs áður. Þá er fæðingarþungi kálfa nokkuð mikill en burður þó auðveldur. Það má því segja að meginstyrkur Hovin Milorg liggi í mikilli vaxtargetu.

Li‘s Roll in One NO74108, f. 15. janúar 2021 hjá Steinar Schanke, Li í Luster við Sognefjord í Noregi. Steinar er vel þekktur Angus-ræktandi í Noregi en frá honum komu t.d. Li‘s Great Tigre, First-Boyd, Ivar og Irving frá Li. Fyrir áhugasama þá birtist viðtal við Steinar í 1. tölublaði Buskap 2017. Li‘s Roll in One er að mestu tilkominn með innflutningi til Noregs en faðir er kanadíska nautið GF Hole in One 7C CA1850240 sem var undan S Titleist 1145 US17007985 frá Bandaríkjunum og móðurfaðir er breskur, Weeton Black Jack P419 GB181671502419.

Li´s Roll in One býr yfir miklum kjötgæðaeiginleikum. Fæðingarþungi kálfa er mikill og því ber aðeins á erfiðum burði. Vaxtarhraði er góður. Dætur Li‘s Roll in One hafa meðalgóða burðareiginleika og eru yfir meðaltali í þunga afkvæma sinna við 200 daga aldur. Fallþungi afkvæma Li‘s Roll in One er mikill og hold- og fituflokkun mjög góð. Hér er því á ferðinni gott kynbótanaut, einkum hvað kjötgæðaeiginleika snertir.

Li‘s Super Nugget NO74116, f. 6. janúar 2022 hjá Steinar Schanke, hinum sama og Li‘s Roll in One. Faðir Li‘s Super Nugget er hinn ástralski Millah Murray Nugget AUNMMN266 og móðurfaðirinn er Li‘s Solid Gold NO62942.

Li‘s Super Nuggett gefur létta burði, vaxtargeta afkvæma hans er mikil og flokkun góð. Dætur hans hafa góða burðareiginleika og afkvæmi þeirra hafa mikinn þunga við 200 daga aldur. Li‘s Super Nugget er því gott alhliða kynbótanaut.

Hovin Sokrates NO74119, f. 18. janúar 2022 hjá Espen Krogstad, þeim sama og Hovin Milorg. Faðir er Kid av Vølstad NO74068 og móðurfaðir er Hovin Håvard NO58998. Hovin Sokrates gefur fremur létta burði og góðan vaxtarhraða. Fallþungi afkvæma er mjög mikill en flokkun undir meðallagi, bæði hvað varðar hold- og fituflokkun. Dætur hans eru undir meðallagi með þunga afkvæma við 200 daga aldur.

Hovin Sokrates gefur því fyrst og fremst mikinn vöxt og þunga en stendur öðrum nautum ekki jafnfætis hvað varðar kjötgæði og dætur.

Í vetur uppgötvaðist í Noregi erfðavísir eða erfðagalli í Angus sem að veldur ófrjósemi. Þessi galli kemur þannig fram að naut sem eru arfhrein eru ófrjó en áhrif á arfblendna gripi eru engin. Eftir því sem næst verður komist barst þessi erfðavísir til Noregs gegnum innflutning fá N-Ameríku og hefur því blandast í norska Angusstofninn án þess að nokkur hefði hugmynd um. Því miður hefur komið í ljós að naut sem hafa verið notuð hér bera þennan galla eða þeir Emil av Lillebakken, Li‘s Great Tigre og Manitu av Høystad. Nú hafa allir núlifandi gripir á Stóra-Ármóti verið arfgreindir og komið hefur í ljós að nokkrir þeirra bera gengið (gallann). Unnið verður að því á komandi misserum að eyða þessum galla út úr ræktunarkjarnanum á StóraÁrmóti en engin ástæða er til þess að hlaupa upp til handa og fóta. Gallinn hefur, eins og áður sagði, einungis áhrif á frjósemi arfhreinna nauta sem eru þá ófrjó. 

Af þeim nautum sem notuð hafa verið til sæðinga hérlendis er staðfest að Jóakim, Erpur, Lundi, Moli og Möskvi eru berar og því 50% líkur á að afkvæmi þeirra beri gallann. Ætli menn að reyna að fá kynbótanaut til notkunar er því rétt að hafa í huga að æxla ekki saman afkomendum Emil av Lillebakken, Li‘s Great Tigre eða Manitu av Høystad.

Í Noregi er unnið að greiningu á kynbótanautum og við höfum fengið staðfest að Laurens av Krogedal, Kid Av Vølstad, Hovin Milorg, Li‘s Roll in One, Li‘s Super Nugget, Hovin Sokrates, Turbo av Eide og Topp XXL eru allir lausir við gallann. Það er mikið lán í óláni að þeir gripir sem við erum að fá núna inn eru undan þessum nautum sem bera ekki gallann og hjálpar okkur mikið við að uppræta hann.

Eðlilega spyrja menn; hvaða áhrif hefur þetta hjá mér, þarf ég að farga gripum? Stutta svarið er nei. Vissulega geta einhverjir gripir borið gallann en hafi naut eignast kálfa er það a.m.k. ekki arfhreint fyrir gallanum því þá væri það ófrjótt. Norðmenn vinna nú að því að koma greiningu á gallanum á arfgerðargreiningarflögu sem við vonumst til að geta fengið til nota hér á komandi misserum. Þá verður hægt að greina hvort gripir bera gallann eður ei og haga ásetningsvali samkvæmt því. Þangað til höldum við ótrauð áfram eins og lítið sem ekkert hafi í skorist en höfum bak við eyrað að æxla síður saman gripum sem mögulega gætu verið berar.

Kynning og lýsing þeirra nauta sem hér hefur hefur farið fram byggir á línulegu útlitsmati og umsögn þeirra Ditte Clausen og Lindu Margrétar Gunnarsdóttur, ráðunauta hjá RML. Rétt er að taka fram að þessi naut verða boðin til kaups frá Nautís utan þá þrjá síðasttöldu, Rey, Njörð og Nökkva. Þeir fara til sæðistöku á Nautastöðinni á Hesti og ekki liggur fyrir hvort þeir verða seldir þaðan eða fargað að lokinni sæðistöku.

Þegar þetta er skrifað er sæðistaka úr þessum nautum nýhafin og því liggur ekki fyrir hver árangur úr henni verður. Hins vegar hefur verið tekin ákvörðun um að Reyr 25401, Njörður 25402 og Naggur 25403 verða fluttir að Hesti til sæðistöku. Þeir verða því ekki seldir, a.m.k. ekki að svo stöddu. Hin nautin, Reimar, Styr, Narfi, Serkur, Náli og Rosi verða boðnir til kaups. Það er alveg ljóst að hér eru á ferðinni úrvalsgripir, ákaflega vel gerð naut sem eiga að geta nýst vel til framræktunar og framleiðslu.

Að lokum er hér svo tafla sem nota má til þess að skoða hver skyldleiki þeirra nauta sem verða notaðir til sæðinga er gagnvart notkun á þeim. Sýnt er með litum hvort rétt sé að nota viðkomandi naut á dætur eldri Angus-sæðinganauta út frá innbyrðis skyldleika.

Höfundur er ábyrgðarmaður í nautgriparækt hjá RML.

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...