Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Atli að leggja af stað í fyrstu gróðursetningu vorsins 2021. Svæðið sem hann er að vinna með er um 80 hektarar.
Atli að leggja af stað í fyrstu gróðursetningu vorsins 2021. Svæðið sem hann er að vinna með er um 80 hektarar.
Mynd / Aðsendar
Líf og starf 6. janúar 2022

„Mér hefur oft blöskrað ástandið á landinu í nágrenni höfuðborgarinnar“

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

„Ég starfa nú sem líffræðikennari við Menntaskólann við Hamrahlíð en hef lengst af verið viðloðandi háskólakennslu. Áhugi minn á náttúru Íslands nær langt aftur og hefur samtvinnast við útivistaráhuga.

Mér hefur oft blöskrað ástandið á landinu í nágrenni höfuðborgarinnar sem víða er tötrum klætt eftir ósjálfbæra landnýtingu fyrri alda,“ segir Atli Jósefsson náttúrufræðingur.

„Flestir borgarbúar telja víst að flagmóar og melaskotnar mosaþembur á Mosfellsheiði séu náttúrulegt ástand gróðurs. Líklega hefur þetta svæði verið klætt birkiskógi við landnám og ég tel að við skuldum sjálfum okkur það að reyna að endurheimta hluta af fyrri landgæðum. Þar sem opinberir aðilar hafa ekki aðhafst mikið ákvað ég að fara af stað með mitt eigið verkefni með von um að það verði öðrum hvatning þó ekki sé það stórt í sniðum,“ segir Atli. Verkefni hans hefur vakið athygli enda ekki mikið um að einstaklingar taki að sér svona stórt svæði til uppgræðslu í næsta nágrenni við höfuðborgarsvæðið.

Bakkaplanta komin í jörð. Grjót til varnar frostlyftingu. 

Fjármagnar verkefnið sjálfur 

Verkefni Atla miðar að því að endurheimta birkiskóga á Elliðakotsheiði (suðvesturhluta grágrýtisdyngjunnar, sem almennt er kölluð Mosfellsheiði). Í dag einkennist landið af gamburmosabreiðum, melum og mólendi en heimildir eru um að þar hafi vaxið birkiskógur á öldum áður og leifar hans til staðar allt fram yfir aldamótin 1800. Land þetta er innan fjárgirðingar höfuðborgarsvæðisins og hefur Atli  fengið góðfúslegt leyfi landeigenda til landbóta á svæðinu. Stefnan er að notast eingöngu við íslenskar lykiltegundir, birki, gul- og loðvíði, auk uppgræðslufræja fyrir melana.

„Nú þegar hef ég sáð um tíu skókössum af birkifræi, stungið niður um 1.000 víðigræðlingum og gróðursett rúmlega 500 birkiplöntur. Stefnan er að gróðursetja 1.000 birkitré á næsta ári en minna verður um fræ þar sem árið í ár var ekki gott fræmyndunarár hjá birki.

Ef allt gengur vel munu þessi tré vera farin að mynda fræ sjálf áður en áratugurinn er úti og taka þannig við verkinu af mér. Verkefnið er alfarið fjármagnað af mér með stuðningi góðra vina,“ segir Atli stoltur.

Gulvíðigræðlingur í ágúst, sem stungið var niður í rofdíl í maí. 

Spírandi uppgræðslufræ á mel. Síðar mun Atli dreifa birkifræjum á svæðinu. 

Skylt efni: uppgræðsla | Skógrækt

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.