Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Yndislegt áhugamál að rækta býflugur
Líf og starf 22. ágúst 2016

Yndislegt áhugamál að rækta býflugur

Höfundur: Vilmundur Hansen

Svala Sigurgeirsdóttir líffræðingur hóf að rækta býflugur í fyrrasumar og árangurinn hefur ekki látið á sér standa, þrátt fyrir að hún hafi gert allt rangt til að byrja með að eigin sögn. Það sem af er sumri hefur hún fengið sextán kíló af hunangi.

„Ég fór á námskeið hjá Býflugna­ræktarfélagi Íslands í fyrra og keypti mér einn pakka af býflugum eins og það kallast. Í einum pakka er um eitt og hálft kíló af flugum, eða um fimmtán hundruð flugur og ein drottning. Ég fékk flugurnar um mánaðamótin júní-júlí en þær eru fluttar hingað til lands frá Álandseyjum þar sem sjúkdómatíðnier lág og flugurnar þar lausar við maur sem leggst á þær víða annars staðar.“

Nágrannarnir taka flugunum fagnandi
Svala segist vera með búið í garðinum hjá sér og að hún eigi yndislega nágranna sem taki flugunum fagnandi og finnist ræktunin forvitnileg.

„Á námskeiðinu hjá Býflugna­ræktarfélaginu lærir maður um líffræði býflugna, smíði hentugs húsnæðis og smíði ramma. Við komuna til landsins frá Álandseyjum er þessum nýbúum sturtað úr flutningskassanum ofan í hið nýgerða heimili. Drottningin kemur sér fyrir í litlu búri ásamt nokkrum þernum. Þetta búr er síðan opnað að hálfu, sett ofan í kassann og á um tveimur dögum sleppur drottningin úr búinu og hefur sína vinnu. Sem ein heild taka allar þernurnar við að undirbúa varp drottningarinnar, mötun ungviðis og söfnun hunangs og frjókorna.

Daginn eftir að ég setti flugurnar og drottninguna í búið drápu þernurnar búrdrottninguna og hentu henni út úr búinu.

Sem betur fer var önnur drottning í sendingunni og hún byrjaði fljótlega að verpa og er hörkudugleg.“

Flugunum fjölgaði hratt
Svala segir að flugunum hjá sér hafi fjölgað hratt og áður en hún vissi af var hún komin með fjóra kassa á fjórum hæðum. „Ég vetraði flugurnar á þremur kössum og vegna þess hvað haustið var gott verpti drottningin í törnum fram í október. Veðrið var flugunum líka hagstætt í vor og ég með fimm kassa. Í hverjum kassa eru tíu rammar og í hverjum ramma eru þúsund varpstæði.

Þegar maður er kominn með svona marga kassa er vinnan við umhirðu flugnanna orðin talsverð en skoða þarf hvern einasta ramma á um tíu daga fresti.

Fjölgunin í kössunum var reyndar svo mikil að flugurnar voru farnar að sýna tilhneigingu til að sverma. Sem þýðir að gamla drottningin flytur sig um set með hluta af vinnudýrunum með sér og leitar sér að öðru heimili. Ég dreif mig því í að smíða fleiri kassa og skipta búinu upp í tvígang.“

Sextán kíló af hunangi
Það sem af er þessu sumri hefur Svala fengið sextán kíló af hunangi sem hún setti á krukkur eftir kúnstarinnar reglum og eitthvað er eftir af fölu sumarhunangi sem er bæði gott ofan á brauð, út í te og einstaklega gott á bólur, segir Svala.

„Mér er sagt að ég eigi eftir að fá talsvert af hunangi í viðbót í sumar. Ég efast reyndar sjálf um að það verði önnur sextán kíló til viðbótar þar sem ég hef ekki fóðrað gamla búið með sykurlegi frá því í vor.“

Ól sjálf upp drottningu
Svala segir óvenjulegt að nýjar drottningar verði til hér á landi en að þernunum í einum kassanum hennar hafi tekist að ala upp eina slíka. „Hún náði síðan að fljúga út nokkrum sinnum og eðla sig í háloftunum við drunta úr öðrum búum hér á Selfossi. Býflugnadrottningar frjóvgast bara einu sinni á ævinni og það getur dugað þeim í allt að átta ár.“

Skemmtilegt áhugamál
„Ég hefði ekki getað trúað því hvað það er skemmtilegt að stunda býflugnarækt áður en ég fór út í hana sjálf. Helsti gallinn er að maður getur ekki farið marga daga í burtu í einu og hvað þá í langt ferðalag, nema að fá einhvern til að hugsa um búið fyrir mann á meðan,“ segir Svala Sigurgeirsdóttir, býflugnaræktandi á Selfossi.

Skylt efni: býflugur | Selfoss

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.