Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Fréttir 31. ágúst 2026

Yfir 700 þúsund seiði afhent í ágústmánuði

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Í ágústmánuði, sem er nú senn á enda, hefur Thor landeldi í Þorlákshöfn afhent um 700 þúsund laxaseiði en mjög góður gangur hefur verið í seiðaframleiðslu félagsins í Þorlákshöfn frá því fyrstu seiðin voru afhent í maí.

Háafell í Ísafjarðardjúpi fékk 300 þúsund seiði nú í ágúst og 400 þúsund seiði fóru til annarra viðskiptavina fyrirtækisins. Þegar þessum afhendingum lýkur verður Thor landeldi búið að afhenda um 1,5 milljónir seiða í sumar.

„Það er mjög ánægjulegt að sjá hversu vel seiðaeldið gengur. Við framleiðum og afhendum seiði til viðskiptavina en jafnframt ölum við seiði fyrir eigið áframeldi. Afhendingarnar í sumar hafa gengið vel og marka mikilvægan áfanga í uppbyggingu starfseminnar,“ segir Steinþór Pálsson, forstjóri Thor landeldis.

Seiðastöðin hefur verið í fullum rekstri frá síðustu áramótum og getur framleitt fjórar milljónir seiða á ári. Með þeirri framleiðslugetu getur stöðin annað seiðaþörf Thor landeldis vegna 20.000 tonna árlegrar framleiðslu á sláturfiski.

Frá upphafi hefur verið gert ráð fyrir að stöðin gegni tveimur hlutverkum fyrstu árin eða annars vegar að framleiða seiði til sölu til annarra fiskeldisfyrirtækja og hins vegar seiði fyrir eigið áframeldi félagsins.

Skylt efni: landeldi

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f