Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
WETLAND skarar fram úr í handverki og hönnun úr sauðfjárafurðum
Íslensk hönnun 17. janúar 2018

WETLAND skarar fram úr í handverki og hönnun úr sauðfjárafurðum

Á dögunum veitti Icelandic lamb nokkrum aðilum viðurkenningar sem skarað hafa fram úr í handverki og hönnun úr sauðfjárafurðum. Hönnunarmerkið WETLAND var í þeirra hópi, en það er hönnunarmerki sem framleiðir lífsstílsvörur undir norrænum áhrifum og sérhæfir sig í vörum úr íslensku lambaskinni.
 
Eigendur vörumerkisins WETLAND eru Sigríður Sunneva Vigfúsdóttir fatahönnuður, Elísabet Jónsdóttir, grafískur hönnuður, og Katrín Dóra Þorsteinsdóttir MBA, rekstrar- og viðskiptafræðingur.
 
Taskan Dimma úr smiðju WETLAND. 
 
Elísabet segir að WETLAND sé nýtt íslenskt hönnunarmerki sem framleiði vandaðar og stílhreinar lífsstílsvörur undir norrænum áhrifum og sérhæfir sig í hönnun á vörum úr íslensku lambaskinni eða svokölluðu mokkaskinni. „Snið eru einföld og klassísk þar sem innblásturs er leitað í fegurð og dulúð íslenskrar náttúru. Hráefni og hönnun haldast í hendur og mynda tímalausa vöru sem endist kynslóð fram af kynslóð,“ útskýrir Elísabet. 
 
Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, sauðfjárbóndi á Ljótarstöðum, er hér í hlutverki fyrirsætu. Hér er hún  í slánni Móru.
 
Ullin og skinnið einstök hráefni
 
Auk WETLAND-samstarfsins eru Elísabet og Sigríður Sunneva með önnur verkefni í gangi. „Ég hef um áratugaskeið rekið hönnunarstúdíóið VOLKI, ásamt meðeiganda mínum, Olgu Hrafnsdóttur,“ segir Elísabet. „Þar hefur  fókusinn verið á  hönnun og framleiðslu á húsgögnum og munum fyrir heimilið úr íslenskri ull. Teppi og treflar eru helsta framleiðsluvaran okkar þar sem litir og geómetrísk mynstur ráða ríkjum.
 
Ég er mjög hrifin af hráefnum sem tengjast íslensku sauðkindinni okkar. Ullin okkar og skinnið eru einstök hráefni sem hefur óteljandi möguleika. Ég tel að hönnunarvörur úr þessum séríslensku hráefnum geti orðið mjög eftirsóknarverðar úti um allan heim.
 
Sunneva á vörumerkið SUNNEVA DESIGN, þar sem fókusinn er fyrst og fremst að sérsauma flíkur úr íslensku mokkaskinni. Hún byrjaði að framleiða undir því vörumerki árið 1996 og var Katrín um tíma framkvæmdastjóri hjá henni,“ segir Elísabet.
 
Fyrst og fremst áhersla á íslenska mokkaskinnnið
 
„Við Sunneva höfum áður unnið saman,“ segir Elísabet. „Hún frumsýndi línu á HönnunarMars 2015 þar sem hún notaði litríku ullarefnin frá VOLKI í bland með íslenska mokkaskinninu. Íslenska ullin og skinnið er stórkostlegt saman og er planið að gera meira af því að vinna með þessi hráefni saman í nýja vörumerkinu okkar, WETLAND.
 
Hjá WETLAND er áherslan fyrst og fremst á íslenska mokkaskinnið og þar koma Sunneva og Katrín sterkar inn. Sunneva hefur margra ára reynslu í hönnun yfirhafna úr íslensku skinni og Katrín hefur rekið eigið fyrirtæki þar sem hún framleiddi töskur úr leðri og skinni. Fyrsta vörulínan WETLAND samanstendur af treflum, slám og töskum úr þessu dásamlega hráefni.
 
Mitt hlutverk hjá WETLAND hefur fyrst og fremst tengst grafískri hönnun.
 
Við leggjum áherslu á sjálfbærni vörunnar, það er að lambaskinnið – sem er aðalhráefnið í línunni – er sjálfbært hráefni þar sem það er aukaafurð sem fellur til við lambakjötsframleiðslu. Okkur finnst mjög mikilvægt að fullnýta þetta frábæra hráefni sem við berum svo óendanlega mikla virðingu fyrir, með því að hanna úr því metnaðarfulla vörulínu.“  
 
Öll framleiðsla enn innanlands
 
Að sögn Elísabetar er öll framleiðslan enn á Íslandi. „Við viljum helst af öllu halda áfram að framleiða allt hér. Vörurnar eru saumaðar á litlum saumastofum á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi.
 
Áhersla er lögð á að nýta hráefnið sem best, engu er hent. Við teljum að með vandaðri og sérstæðri hönnun næst fram glæsileg og einföld flík sem endist kynslóð fram af kynslóð, umhverfisvæn úr náttúrulegum efnum og hentar nútíma fagurkera sem vill lifa í góðri sátt við náttúruna.“
 
WETLAND-vörurnar er hægt að kaupa á netinu í gegnum vefsíðuna þeirra, wetland.is, en þar er einnig að finna upplýsingar um hönnunarmerkið og sýnishorn af hönnun þeirra og framleiðslu. 
 
Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f