Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Leikfélag Keflavíkur setur á svið söngleikinn We will rock you.
Leikfélag Keflavíkur setur á svið söngleikinn We will rock you.
Mynd / Davíð Örn Óskarsson
Áhugaleikhús 17. apríl 2026

We will Rock you

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Leikfélag Keflavíkur frumsýndi söngleikinn We Will Rock You í byrjun síðasta mánaðar við öflugar undirtektir og vilja leikhúsgestir meina að sjaldan hafi sést viðlíkur kraftur á sviði.

Verkið sem fjallar um frelsi, sjálfs- mynd, uppreisn og mátt tónlistar er skrifað af hinum breska Ben Elton í samstarfi við gítarleikarann Brian May og trommarann Roger Taylor úr Queen. Ben, sem margir kannast við sem einn höfunda Black Adder, hefur m.a. leikstýrt stórum sýningum yfir árin, auk þess að snúa sjálfur á svið í West End árið 2023. Þar lék hann og leikstýrði hann sinni eigin sýningu, hinni einu og sönnu We Will Rock You og tókst þar á við hlutverk „Rebel Leader“ (áður þekktum sem Pop).

Söngleikurinn We Will Rock You er í senn óður til tónlistar Queen og dystópísk framtíðarsýn. Sagan gerist á plánetunni iPlanet, sem áður hét Jörðin, þar sem alræðisfyrirtækið Globalsoft ræður ríkjum. Í þessum heimi er öllu stýrt; ungmenni klæðast eins, hugsa eins og hlusta á tölvugerða popptónlist. Lifandi tónlist og hljóðfæri hafa verið bönnuð og gleymd.

Myndir / Davíð Örn Óskarsson

Aðalpersónurnar, Galileo og Scaramouche, eru utangarðsfólk sem finna ekki samhljóm í þeim einsleita veruleika sem lífið er orðið. Þau sameinast því hópi uppreisnarseggja, svokallaðra „Bóhema“, í leit að týndum vísbendingum um fortíðina – sérstaklega goðsagnakennda „rokkið“. Boðskapur verksins snýst um einstaklingsfrelsið, sköpunargleðina og mikilvægi þess að týna ekki menningararfinum í tæknivæddum heimi. Verkið er í íslenskri þýðingu Jóhanns Axels Andersen, sem hefur fengið lof fyrir að fanga hinn alþekkta beitta breska húmor. Meðlimir leikfélagsins uppfærðu textann þó aðeins og staðfærðu og útkoman ekkert annað en snilld.

Leikstjórn er í höndum Kristínar Leu Sigríðardóttur, tónlistarstjóri er Sigurður Smári Hansson og danshöfundur Helga Ásta Ólafsdóttir.

Sýningar verða dagana 16., 17., 22., 23. og 26. apríl kl. 20 og nú er um að gera að reyna að ná sér í miða á tix.is.

(Varað er við notkun strobelýsingar í sýningunni.)

Skylt efni: Leikfelag Keflavikur

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.