Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Vitundarvika um skynsamlega notkun sýklalyfja
Fréttir 15. nóvember 2017

Vitundarvika um skynsamlega notkun sýklalyfja

Höfundur: Vilmundur Hansen

Hin alþjóðlega vitundarvika um skynsamlega notkun sýklalyfja hófst mánudaginn 13.nóvember og stendur yfir til föstudagsins 19. nóvember.

Á heimasíðu Matvælastofnunnar segir að ónæmi gegn sýklalyfjum sé að aukast út um allan heim sem getur leitt til vandamála þegar kemur að því að meðhöndla algengar sýkingar. Erfitt getur reynst að meðhöndla sýkingar í mönnum og dýrum ef að dregur úr virkni sýklalyfja. Notkun sýklalyfja er nátengd þróun ónæmis gegn sýklalyfjum.

Röng notkun og ofnotkun á sýklalyfjum eykur hættu á myndun ónæmis gegn sýklalyfjum. Ofnotkun getur stafað af of mikilli ávísun sýklalyfja meðal lækna og dýralækna og aðgengi almennings að sýklalyfjum án lyfseðils, svo dæmi séu nefnd. Notkun sýklalyfja til meðhöndlunar á veirusýkingum og notkun sýklalyfja sem vaxtarhvetjandi efni fyrir búfé eru dæmi um ranga notkun sýklalyfja.

Skýrslur Landlæknis og Lyfjastofnunar Evrópu, sem komu báðar nýverið út, um sölu sýklalyfja handa dýrum sýna fram á það að á Íslandi er sala sýklalyfja handa dýrum með minnsta móti í Evrópu og fer lækkandi. Hérlendis er sala sýklalyfja handa dýrum sem eru þröngvirk, beta-laktamasanæm penicillin, algeng sem er jákvætt, þar sem notkun þröngvirkra sýklalyfja takmarkar myndun á sýklalyfjaónæmi.

OIE, WHO og FAO hafa tekið höndum saman í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi undir yfirskriftinni „One Health“. Herferðinni er ætlað að stuðla að betri starfsháttum til að draga úr aukningu og útbreiðslu á ónæmi gegn sýklalyfjum bæði hjá mönnum og dýrum. Á meðan á vitundarvikunni stendur munu OIE, WHO og FAO einbeita sér á samfélagsmiðlum sínum að því að auka vitund almennings, heilbrigðisstarfsfólks, yfirvalda, bænda, dýralækna, matvæla- og fóðuriðnaðarins og annarra ásamt því að benda á leiðir til að vinna gegn sýklalyfjaónæmi. Þetta árið verður áhersla lögð á mikilvægi þess að fólk fái upplýsingar og leiðbeiningar frá dýralæknum, læknum og  öðru heilbrigðisstarfsfólki áður en sýklalyf eru notuð til að tryggja rétta notkun og viðeigandi meðhöndlun við sjúkdómum.

Á upplýsingarsíðu OIE um vitundarvikuna er m.a. hægt að finna fróðlega einblöðunga og stutt og hnitmiðuð myndbönd um hvaða skref hægt er að taka í átt að skynsamlegri notkun sýklalyfja.

Ítarefni:
Vefsíða Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunarinnar (OIE) um sýklalyfjaónæmi
Vefsíða Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) um sýklalyfjaónæmi
Vefsíða Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) um vitundarviku um skynsamlega notkun sýklalyfja
Vefsíða Matvæla- og landbúnaðarstofnunar SÞ (FAO) um vitundarviku um skynsamlega notkun sýklalyfja

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.