Vísnahornið
Líf og starf 19. október 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Ingólfur Ómar Ármannsson lýsir eftirleitum af sinni kunnu snilld:

Garpar þræða grjót og for

gegnum þokudrungann.

Gangnamanna gengin spor

geymir heiðabungan.

Finnst mér seiða firnin öll

fram með eyðidröngum.

Þó erfið reið sé upp um fjöll

og í heiðagöngum.

Í bókinni Jónu, atkvæði og ambögur lýsir Jón Ingvar Jónsson sjálfum sér á þann hátt sem honum var lagið:

Fólk er nafn sem fær að vara

fáein ár og deyr.

Ég er sjálfur jafnvel bara

Jón og ekkert meir.

Ég hef alveg afleit gen,

enda fól og glanni,

rætinn, þver og illgjarn er

annars gull af manni.

Viðhald vega á landsbyggðinni er stöðugt í gangi. Snillingurinn Jón Jens lýsir vegabótum svona:

Við Kaldármela er komin upp

kunnugleg raunasaga.

Þar sem að vondsleg vegabót

verður til nokkurs baga,

allt var þar fyrir unnið gýg,

enn þarf að bæta og laga.

Því að harða en hola skurn

held var til þriggja daga.

Og hér er væntnlega sönn lýsing á vegi hjá Jóni Jens og nokkuð myndræn:

Handan við Háanúp er,

hola sem breið og djúp er

og nóg er þar grugg um,

hún nær upp að gluggum

á óbreyttum Isuzu Trooper.

Og þannig lýsir Jón Jens heyönnum:

Á stórbýlinu strax var allt til reiðu

og stirndi á vélar hinar dýru og breiðu

en hinum megin ár,

hrímfölur og grár

Friðgeir sló á Farmal Cub með greiðu.

Sá ágæti hagyrðingur Baldur Hafstað var á ferð í krækiberjaleit fyrir norðan, daginn fyrir kosningarnar á dögunum:

Ég ók í morgun sveit úr sveit

og sá á túnum heyrúllur.

Aðeins nánar á þær leit:

Allt voru það NEI-rúllur.

Og þessi vísa Baldurs varðandi PISA-hitamálið, þarfnast ekki skýringa:

Alltaf batnar ástandið:

Einkunnirnar fallandi.

Í neðstu tröppu trónum við

turnsins fræga hallandi.

Haustrigning í ljósi Þórarins Eldjárns úr kverinu um Eitt og annað:

Haustrigningar hafnar

himinn bleytu safnar

sem endist fram í febrúar.

Fuggan vex og dafnar.

Þórarinn Eldjárn gerir söfnurum skil og líti nú hver í eigin barm:

Allajafna

menn eru að safna.

Einn safnar ryki

annar spiki.

Gömul íþrótt er að biðja menn um að botna. Þessum dýra fyrriparti skellti Guðbrandur Stephensen járnsmiður á Sigurð Breiðfjörð sem var víst vel slompaður, en svaraði þó að bragði:

Fellibylja skelli skúr

sköllótt fjöllin þakin ísum.

Ég er dauður orðum úr

ei get komið saman vísum.

Umsjón: Magnús Halldórsson

mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...