Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Uppgangur hefur verið í Stykkishólmi á undanförnum árum, ekki síst vegna vaxandi ferðaþjónustu. Margir brottflutt­ir sem og utanaðkomandi fólk hefur keypt þar íbúðir án þess að hafa þar fasta búsetu. Borga þeir þar af leiðandi ekki útsvar á staðnum. Sama
Uppgangur hefur verið í Stykkishólmi á undanförnum árum, ekki síst vegna vaxandi ferðaþjónustu. Margir brottflutt­ir sem og utanaðkomandi fólk hefur keypt þar íbúðir án þess að hafa þar fasta búsetu. Borga þeir þar af leiðandi ekki útsvar á staðnum. Sama
Mynd / HKr.
Fréttir 24. maí 2016

Vísbendingar um að búseta leggist af í einstökum byggðarlögum

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Vísbendingar eru um að föst búseta í einstökum byggðarlögum gæti lagst af innan 20 ára vegna þess að íbúðir þar eru vinsælar sem sumarhús aðkomumanna. Dæmi er um að þriðjungur eigna séu í eigu „utanbæjarmanna“ og útlit er fyrir að það hlutfall eigi eftir að aukast. Þróun af þessu tagi er nefnd fjarbúaspenna.
 
Á ársfundi Byggðastofnunar sem haldinn var í Miðgarði í Skagafirði í síðasta mánuði fór fram úthlutun úr Byggðarannsóknasjóði. Eitt verkefnanna sem hlaut styrk að þessu sinni snýst um fjarbúa og fasteignamarkað á landsbyggðinni. Styrkþegi er Vífill Karlsson og hlaut verkefni hans 2,5 milljónir króna í styrk.
 
Kortleggja samfélög sem búa við fjarbúaspennu
 
Fram kemur á vefsíðu Byggða­stofnunar að rannsaka eigi fasteignamarkaðinn á landsbyggðinni og kortleggja hve mörg samfélög búi við fjarbúaspennu. Notaður verður nafnalisti yfir alla sem eiga fasteignir þar og þeir fundnir sem ekki hafa þar lögheimili. Þeim verður send skoðanakönnun og spurt hvort þeir vilja selja, leigja eða eiga sínar eignir. Þeir sem vilja selja verða spurðir um söluverð til þess að fá hugmynd um hvort byggingarkostnaður sé í takt við markaðsverð. Með þessum hætti verður hægt að meta fjarbúaspennu, þ.e. hvort stór hluti húsnæðis sé „haldið frá“ leigu- eða sölumarkaðnum og setji þar með staðbundna vinnumarkaðnum og fólki á vinnumarkaði skorður.
 
Svæðisbundnir háskólar og vinnusóknarmynstur
 
Þrír aðrir styrkir voru veittir úr Byggðarannsóknasjóði á ársfundinum. Þóroddur Bjarnason fékk 3 milljónir króna til að kanna svæðisbundin áhrif íslenskra háskóla. Framtíðarsetur Íslands hlaut 2,5 milljónir til að vinna rannsókn sem nefnist Aðferðir framtíðarfræða. Hvert er hagnýtt gildi þeirra við byggðaþróun? Lilja Guðríður Karlsdóttir fékk 2 milljónir króna í styrk vegna rannsóknar sem hefur yfirskriftina Vinnusóknarmynstur og vinnusóknarsvæði á Norðurlandi.
 
Byggðarannsóknasjóður var stofnaður haustið 2014 og er fjármagnaður af fjárlagalið byggðaáætlunar og með framlagi frá Byggðastofnun. Til úthlutunar eru 10 milljónir króna. Alls bárust 15 umsóknir, samtals að upphæð rúmlega 48 milljónir króna. Umsóknirnar voru afar fjölbreyttar og flestar uppfylltu þær skilyrði sjóðsins. 
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.