Hér sést leiðin sem farin verður með vindmyllurnar 24 úr Þorlákshöfn í Vaðölduver. Heildarfjöldi ferða verður á bilinu 300–400, þar sem gera má ráð fyrir 13 ferðum fyrir hverja vindmyllu.
Hér sést leiðin sem farin verður með vindmyllurnar 24 úr Þorlákshöfn í Vaðölduver. Heildarfjöldi ferða verður á bilinu 300–400, þar sem gera má ráð fyrir 13 ferðum fyrir hverja vindmyllu.
Mynd / Landsvirkjun
Fréttir 5. mars 2026

Vindmyllur fluttar úr Þorlákshöfn í Vaðölduver

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Landsvirkjun er nú af fullum krafti að undirbúa flutning á 28 vindmyllum í Vaðölduver en þar á að reisa fyrsta vindorkuver landsins á stærsta aflsvæði Landsvirkjunar, Þjórsár- og Tungnaársvæðinu.

Vindmyllurnar koma með skipi í Þorlákshöfn frá þýska vindmylluframleiðandanum Enercon en skipið kemur með tvær vindmyllur í hverri ferð. Flutningsleiðin er um 130 kílómetrar en alls verða farnir 350 flutningar vorið 2026 og vorið 2027.

Flutningarnir munu fara fram sex daga vikunnar að nóttu til og er meðalhraði flutningalestarinnar áætlaður um 30 km á klukkustund, sem þýðir að ferðatími frá Þorlákshöfn í Vaðölduver verður yfirleitt fjórar til sex klukkustundir.

Gunnar Aron Ólason
Gunnar Aron Ólason

Gunnar Aron Ólason er upplýsingafulltrúi nýframkvæmda hjá Landsvirkjun og þekkir því vel til málsins. „Undirbúningsframkvæmdir hafa staðið yfir frá hausti 2024 og fela m.a. í sér vegagerð, aðstöðu á verkstað og ítarlega flutningsáætlun. Núna snýst vinnan einkum um að fullklára áætlanir, leyfisveitingar, samninga og samhæfingu við hlutaðeigandi aðila ásamt því að ráðast í nauðsynlegar vegbætur og lagfæringar á flutningsleiðinni. Þar er uppbygging efri hluta Landvegar í Rangárþingi ytra stærsta og ein mikilvægasta framkvæmdin, vegurinn er styrktur sérstaklega fyrir flutninginn, ný 16 metra löng brú byggð og tæplega 14 km vegkafli lagður bundnu slitlagi,“ segir Gunnar.

10 sérútbúnir flutningabílar

Gert er ráð fyrir um 10 sérútbúnum flutningabílum með sérvögnum fyrir helstu einingar myllanna. Þar að auki bætast við fylgdarbílar, merkingar- og lokanateymi og þeir aðilar, sem sinna umferðarstýringu, öryggi og samhæfingu. Fyrir hverja vindmyllu þarf 13 leyfisskylda flutninga þannig að fyrir allar vindmyllurnar 28 verða leyfisskyldir flutningar yfir 350 talsins. Hver flutningslest getur orðið allt að 250 m löng.

Vindmyllurnar koma til Þorlákshafnar með þessu flutningaskipi frá þýska vindmylluframleiðandanum Enercon. Skipið er sérhannað fyrir vindmylluflutninga en það mun koma með tvær vindmyllur í hverri ferð.

14 vindmyllur fluttar í vor

En hvenær hefjast flutningarnir á vindmyllunum?

„Flutningar á fyrri fjórtán vindmyllunum eru áætlaðir í vor eða sumarbyrjun. Nákvæmar dagsetningar, lokanir og hjáleiðir verða auglýstar rækilega þegar nær dregur. Seinni fjórtán myllurnar verða svo fluttar á sama tíma að ári en hvort flutningstímabil er 7–9 vikur,“ segir Gunnar og bætir við að verkefnið sé mjög spennandi og skemmtilegt. „Já, svo sannarlega, því þetta eru líklega stærstu þungaflutningar Íslandssögunnar og það er mjög skemmtilegt og spennandi að taka þátt í undirbúningi verkefnis sem hefur aldrei verið unnið áður hérlendis. Stærðargráða og tæknileg útfærsla flutninganna er krefjandi en um leið er þetta mjög agað öryggis- og skipulagsverkefni þar sem áherslan er alltaf á öryggi, samvinnu og góða upplýsingagjöf,“ segir Gunnar.

Sérstök upplýsingasíða um flutningana

Að lokum má geta þess að Landsvirkjun hefur komið upp upplýsingasíðu um flutningana í Vaðölduver, sem er komin í loftið á vef Landsvirkjunar en slóðin er www.landsvirkjun.is/flutningar. Þar má m.a. finna almennt yfirlit yfir flutningana, kort af flutningsleið, áætlaðar tímasetningar og vegbætur, ásamt svörum við algengum spurningum.

„Tilgangurinn með þessari upplýsingasíðu er að tryggja opna og skýra og tímanlega upplýsingagjöf til íbúa, vegfarenda, fyrirtækja og annarra sem gætu orðið fyrir áhrifum af flutningunum. Við hvetjum alla til að fylgjast með uppfærslum á síðunni þegar nær dregur,“ segir Gunnar.

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...