Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Höfundur: Þröstur Helgason

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og efnahagsráðuneytisins um breytingar á sköttum og gjöldum og skora á ráðherra að falla frá ákvæðum um breytta tollflokkun pitsuosts og framlengingu tollaundanþága fyrir tiltekið útiræktað grænmeti. Samtökin telja áhrifamat ófullnægjandi og að ekki hafi verið sýnt fram á lagalega nauðsyn breytinganna.

Í umsögn Bændasamtakanna segir að fyrirhuguð breyting á tollflokkun pitsuosts myndi leiða til þess að vara sem inniheldur 82,5% mozzarellaost og 11–12% pálmaolíu yrði flokkuð sem tollfrjáls vara í stað mjólkurosts sem ber tolla.

Samtökin mótmæla því að um sé að ræða einfalda skýringu á gildandi reglum. Þvert á móti sé um efnislega breytingu að ræða á réttarstöðu sem íslensk stjórnvöld og dómstólar hafi ítrekað staðfest. Þau telja jafnframt að ekki hafi verið sýnt fram á að álit samskrárnefndar Alþjóðatollastofnunarinnar eða afstaða ESA skapi lagalega skyldu til breytingarinnar.

Áhrif á mjólkurframleiðslu

Bændasamtökin leggja mikla áherslu á möguleg áhrif á íslenska mjólkurframleiðslu. Samkvæmt umsögninni fara rúmlega 18,5 milljónir lítra mjólkur, eða rúm 12% allrar mjólkur sem framleidd er hér á landi, árlega í framleiðslu á rifnum osti fyrir innanlandsmarkað. Það jafngildi mjólkurframleiðslu 49 meðalkúabúa og skili kúabændum um 2,7 milljörðum króna í beinar afurðatekjur árlega.

Samtökin benda jafnframt á að framleiðsla rifins osts tengist vinnslu á Egilsstöðum og Sauðárkróki og telja að ekki hafi verið lagt mat á möguleg áhrif breytingarinnar á atvinnu, byggðaþróun og verðmætasköpun.

Innlent framboð á grænmeti nægilegt

Þá gagnrýna Bændasamtökin fyrirhugaða eins árs framlengingu lægri innflutningstolla á tiltekið útiræktað grænmeti. Samkvæmt upplýsingum sem samtökin vísa til sé innlent framboð nægilegt og kartöflugeymslur fullar. Uppskera flestra kartöflubænda í ár sé með allra besta móti að magni og gæðum og birgðir tryggi framboð fram á næsta sumar.

Samtökin benda einnig á að sala á íslensku blómkáli hafi dregist saman um rúm 45% þegar opnað var fyrir innflutning á blómkáli með tollaundanþágu.

Bændasamtökin skora því á stjórnvöld að fella 18. og 20. gr. úr frumvarpsdrögunum. Þau telja hvorki hafa verið sýnt fram á nauðsyn breytinganna né lagalegar forsendur þeirra og að fullnægjandi mat á áhrifum þeirra á íslenskan landbúnað, fæðuöryggi og innlenda matvælaframleiðslu liggi ekki fyrir.

Skylt efni: tollamál | ostar

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...