Vilhjálmur Svanberg Arngrímsson þótti eiga bestu myndina en titill hennar er „Tilbúinn til flugs“.
Vilhjálmur Svanberg Arngrímsson þótti eiga bestu myndina en titill hennar er „Tilbúinn til flugs“.
Mynd / Vilhjálmur Svanberg Arngrímsson
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Höfundur: Þröstur Helgason

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arngrímsson og Hlynur Steinsson. Er þetta í fyrsta skipti sem keppnin er haldin en um er að ræða árlegan viðburð.

Þemað í ár var Líf í mýri og var áhugaljósmyndurum, sem og fagfólki, boðið að taka þátt í myndasamkeppni sem endurspeglaði einstakt lífríki votlendis á Íslandi sem gegnir lykilhlutverki í að varðveita líffræðilega fjölbreytni, binda kolefni og skapa búsvæði fyrir fjölmargar fugla- og dýrategundir. Mýralíf leitaði að myndum og myndböndum af fuglum, plöntum og landslagi – sem og dýrum og fólki í þessu mikilvæga og stórbrotna vistkerfi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Fuglavernd.

Vilhjálmur Svanberg Arngrímsson þótti eiga bestu myndina en titill hennar er „Tilbúinn til flugs“. „Myndin sýnir jaðrakan að hefja sig til flugs í mýri, rétt við Tungurif í Patreksfirði. Viðfangsefnið á einstaklega vel við þar sem jaðrakan er einkennisfugl mýralífs og votlendis á Íslandi“, segir í fréttatilkynningunni. Aukaverðlaun hlaut Hlynur Steinsson fyrir myndina „Fuglaþúfa“ sem tekin var við Fellsenda á Mosfellsheiði. „Myndin þótti fanga einstaklega vel þá stemningu sem fylgir mýri og votlendi. Myndin er grípandi og dáleiðandi í senn.“

Aukaverðlaun hlaut Hlynur Steinsson fyrir myndina „Fuglaþúfa“ sem tekin var við Fellsenda á Mosfellsheiði.

Piia Tomingas hlaut einnig verðlaun fyrir myndband með titlinum „Tveir tjarnartígrar – starbyttur (Agrypnia picta)“ sem tekið var upp á Mýrum. „Myndbandið er af starbyttum, rándýrum mýrartjarnarinnar, í leit að næstu máltíð. Það sýnir glögglega að ekki er allt sem sýnist í votlendi og að finna megi þar fjölbreytt líf. Hægt er að skoða það á YouTube-rás Mýralífs.“

Mýralíf (Peatland LIFEline) er umfangsmikið verkefni sem miðar að endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. 

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...