Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Hólmfríður Jakobsdóttir og Haukur Guðmundsson, starfsmenn Héraðs- og Austurlandsskóga, að gróðursetja af kappi á Grund í Jökuldal.
Hólmfríður Jakobsdóttir og Haukur Guðmundsson, starfsmenn Héraðs- og Austurlandsskóga, að gróðursetja af kappi á Grund í Jökuldal.
Mynd / Borja Alcober
Fréttir 19. júní 2015

Víða ekki hægt að koma niður plöntum vegna klaka og bleytu

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Gróðursetningar hófust fyrir nokkru á Austurlandi þrátt fyrir langt og kalt vor og eru fáeinir skógarbændur komnir vel á veg með að setja út frysta lerkið. 
 
„Veðrið hefur töluvert verið að stríða okkur í vor varðandi gróðursetningar. Það hefur gengið hægar en vanalega að koma út lerki sem geymt hefur verið í frysti yfir veturinn, en það eru þær plöntur sem þarf að koma fyrst út,“ segir Ólöf I. Sigurbjartsdóttir, framkvæmdastjóri Héraðs- og Austurlandsskóga.
 
Hún segir mikilvægt að koma plöntum sem fyrst út, helst megi það ekki dragast mikið yfir mánaðamótin maí/júní að koma plöntum í jörð. Aðstæður hafa verið með þeim hætti í vor að víða var hreinlega ekki hægt að koma plöntum niður vegna klaka og eða bleytu.  
 
Ekki alltaf jólin
 
Eitthvað hafi verið um að setja hafi þurft þær plöntur sem ekki komust í jörð í plöntubakka til áframræktunar og þá með tilheyrandi aukakostnaði. Eins hafi landeigendur í einhverjum mæli skilað inn plöntum sem þeim var úthlutað því svæðin voru víða svo blaut að ekki var hægt að komast inn á þau. Til að bæta enn gráu ofan á svart vantar líka sums staðar mannskap í gróðursetningar, en margir landeigendur treysta sér ekki til eða hafa ekki tök á að koma sjálfir niður plöntum.
 
„Það verður að segjast eins og er að það eru ekki margir að sækjast eftir að komast í gróðursetningu þegar hitastigið er 2 °C og slydda.  Svo það eru ekki alltaf jólin í þessu frekar en öðru,“ segir Ólöf.
 
Teygjum á gróðursetningartímanum
 
Hún segir að fáeinir skógarbændur séu komnir vel á veg með að setja út fryst lerki „og við hvetjum þá sem ekki eru byrjaðir en fengu úthlutað frystu lerki að kappkosta að koma því í jörðu sem allra fyrst,“ segir hún.   
 
Rannsóknir sýni að hratt dragi úr lifun frostplantna ef þær fara seint í jörðu og viðmiðið hefur verið mánaðamótin maí-júní.
 
„Í ljósi þess hversu seint hefur vorað hefur var ákveðið að teygja gróðursetningartímann eins langt og þorandi þótti. Eftir þann tíma þurftum við að setja plöntur í bakka til áframhaldandi ræktunar, þeim plöntum sem verður skilað inn þurfa lengri umönnun á gróðrarstöð og verða gróðursettar í haust. Þetta skapar okkur aukakostnað og -vinnu því lagt var upp með að þessar plöntur kæmust út núna í vor,“ segir Ólöf.  Hún bætir við að ekki sé um stórmál að ræða, en þetta sé dæmi um afleiðingar veðurfarsins, „og er vissulega þó nokkur kostnaðarauki fyrir verkefnið“.
 
Ólöf segir að þrátt fyrir kuldatíð undanfarið komi skógurinn fallegur undan vetri og það megi þakka stöðugu veðurfari á liðnum vetri, sem var laus við hitasveiflur.

Skylt efni: Skógrækt

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.