Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Þessi var heppinn að halda hendinni.
Þessi var heppinn að halda hendinni.
Fréttir 13. júní 2016

Við verðum að huga betur að forvörnum unglinga og barna

Í einum af þessum stuttu pistlum hér þar sem verið er að reyna að ná til fólks með forvarnir ungmenna í huga var birt mynd af unglingi með heykvísl í óæðri endanum. 
 
Myndbirting þessi rataði í aðra fjölmiðla og fannst mörgum ég fara yfir strikið, en ég sé ekki eftir neinu og fannst myndbirtingin hæfa lesefninu.
 
 Sem dæmi þá sá ég í írskri samantekt um slys ungmenna svo ógeðfellda mynd af slösuðum unglingi að mér blöskraði þar sem unglingurinn lá í blóði sínu. Ég sá seinna sömu mynd í forvarnarbæklingi um úrtaksdrifsköft á dráttarvélum þar sem unglingurinn deildi sögu sinni. 
 
Persónulega finnst mér að það megi ganga svolítið langt í myndbirtingum í forvarnarskyni. Því ef einhver getur slasað sig við tiltekna iðju, geta aðrir það líka. Af hverju ætti þá ekki að vera sjálfsagður hlutur að vara við hættunni? 
 
Nýlega birti Starfsgreina­sambandið á heimasíðu sinni stutta frétt um nýútkomna skýrslu um vinnuslys unglinga á Norðurlöndum, en þar mátti meðal annars lesa orðrétt:
 
„Í nýútkominni rannsókn á velferð og öryggi ungs fólks á vinnumarkaðnum kemur fram að Ísland er eftirbátur hinna Norðurlandanna í að koma í veg fyrir slys á ungu fólki. Í heildina er ungt fólk á vinnumarkaði í meiri hættu á að hljóta andlegan og líkamlegan skaða af vinnu heldur er eldra fólk. Ungu fólki á vinnumarkaði er sérstaklega hætt við slysum í landbúnaði, skógarvinnslu og fiskiðnaði. Fjöldi ungs fólks hér á landi í fiskiðnaði getur skýrt háar slysatölur. Þá er það einkennandi fyrir öll Norðurlöndin að karlar eru í meiri hættu á að slasast við störf heldur en konur og er það rakið til eðli þeirra starfa sem karlar veljast til.“
 
Ég renndi stuttlega yfir þessa samantekt og hjó sérstaklega eftir því hversu mun fleiri prósent ungs fólks er í vinnu hér á Íslandi miðað við hinar Norðurlandaþjóðirnar, sem segir okkur bara það eitt að reyndi starfsmaðurinn þarf að vera vel á verði gagnvart unga fólkinu og leiðbeina því fyrstu vinnuárin.
 
Í sjöunda blaði 2015 var sagt:  „...ekki spurning hvort heldur hvenær...“
 
Fyrir nokkrum dögum sá ég í fjölmiðlum að barn hefði slasað sig við heyrúllu og flutt til aðhlynningar með þyrlu. Í 7. tbl. 2015 ræddi ég um hættuna sem stafar af heyrúllum ef rangt er tekið úr rúllustæðum. Í greininni sagði ég orðrétt eftirfarandi um heyrúllustæður:
 
„Að banna leik getur hugsanlega bara gert það meira spennandi. Í þau skipti sem ég hef séð rúllur í rúllustæðu slúta fram fyrir sig hef ég hugsað með hryllingi hvað ef krakkar yrðu undir þessari rúllu þegar hún hrynur niður. Það er ekki spurning um hvort það verði slys þegar rúllur eru teknar undan úr stæðum, það mun gerast, en tryggðu að slysið verði ekki hjá þér með réttum vinnubrögðum.“
Það er of mikið af slysum á börnum og unglingum við vinnu og leik, við verðum að fara að taka okkur á í þessum málaflokki annaðhvort NÚNA eða STRAX. 
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.