Áburðardreifing á Suðurlandi árið 2025.
Áburðardreifing á Suðurlandi árið 2025.
Mynd / ál
Á faglegum nótum 12. ágúst 2026

Verða íslenskir bændur áburðarframleiðendur í framtíðinni?

Höfundur: Unnsteinn Snorri Snorrason
Unnsteinn Snorri Snorrason.

Framleiðsla köfnunarefnisáburðar gæti tekið miklum breytingum á næstu árum. Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Atmonia vinnur að þróun nýrrar aðferðar sem nýtir raforku, loft og vatn til að framleiða ammóníak, grunnhráefni köfnunarefnisáburðar. Takist þróunin gætu bændur í framtíðinni framleitt hluta af þeim áburði sem þeir nota sjálfir og þannig dregið úr innflutningsþörf og styrkt fæðuöryggi landsins.

Atmonia var stofnað árið 2016 upp úr rannsóknum við Háskóla Íslands og þróunarstarfi í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Fyrirtækið hefur þróað nýja rafefnafræðilega aðferð til að framleiða ammóníak úr köfnunarefni úr andrúmsloftinu og vatni með endurnýjanlegri raforku. Markmiðið er að bjóða upp á umhverfisvænni og sveigjanlegri framleiðslu en hið hefðbundna Haber–Bosch-ferli, sem byggir á jarðgasi, háum hita og miklum þrýstingi og veldur umtalsverðri losun gróðurhúsalofttegunda.

Fyrsta afurð Atmonia verður framleiðslubúnaður í 40 feta gámi sem getur framleitt allt að 150 tonn af ammóníaki á ári. Ammóníakið verður síðan unnið áfram í mismunandi áburðarefnasambönd, svo sem ammóníumsúlfat, díammóníumfosfat eða önnur form köfnunarefnisáburðar, allt eftir næringarþörfum þeirra plantna sem ræktaðar eru.

Þessi framleiðsluaðferð gæti haft sérstaka þýðingu fyrir Ísland. Í dag er allur köfnunarefnisáburður fluttur inn og íslenskur landbúnaður því háður alþjóðlegum mörkuðum, flutningum og sveiflum í verði á orku og hráefnum. Samkvæmt áætlunum Atmonia gætu um 70–100 framleiðslueiningar annað allri þörf Íslands fyrir köfnunarefnisáburð. Fyrirtækið gerir jafnframt ráð fyrir samstarfi við innflytjendur áburðar til að tryggja að bændur hafi áfram aðgang að þeim næringarefnum sem mismunandi ræktun krefst.

Framleiðslubúnaðurinn gæti hentað sérstaklega vel búum sem hafa aðgang að eigin raforkuframleiðslu, til dæmis með smávirkjunum, vindorku eða annarri endurnýjanlegri orkugjöf. Slík bú gætu í framtíðinni framleitt hluta af þeim áburði sem reksturinn þarfnast. Einnig má ímynda sér sameiginlegar framleiðslueiningar sem þjóna fleiri búum eða heilum byggðarlögum og skapa þannig ný tækifæri til verðmætasköpunar í dreifbýli.

Framleiðsluaðferðin hefur þegar vakið athygli bæði hér á landi og erlendis. Atmonia hefur hlotið fjölda styrkja og viðurkenninga og fékk nýverið, ásamt samstarfsaðilum sínum, 2,5 milljóna evra styrk frá Evrópusambandinu til verkefnisins EASY – Electrocatalytic Ammonia Synthesis. Verkefnið sameinar rannsóknastofnanir og fyrirtæki frá nokkrum Evrópulöndum með það markmið að þróa og færa þessa framleiðsluaðferð nær markaði.Landbúnaðarháskóli Íslands er einn af samstarfsaðilum EASY-verkefnisins og hefur það hlutverk að meta hvernig þessi nýja framleiðsluaðferð gæti nýst íslenskum landbúnaði. Því er mikilvægt að sjónarmið bænda liggi fyrir strax á þessu stigi þannig að lausnirnar taki mið af íslenskum rekstrar- og ræktunaraðstæðum.

Sem hluti af verkefninu óska Atmonia og Landbúnaðarháskóli Íslands nú eftir þátttöku íslenskra bænda í stuttri könnun. Markmið hennar er að kanna áhuga bænda á framleiðslu köfnunarefnisáburðar á eigin búi, í nágrenni búa eða í sameiginlegum framleiðslueiningum sem gætu þjónað heilu byggðarlagi. Einnig er leitað eftir sjónarmiðum um hvaða tækifæri og áskoranir bændur sjá í slíkri þróun.

Niðurstöður könnunarinnar verða nýttar við áframhaldandi vinnu verkefnisins og gefa mikilvægar upplýsingar um hvort og hvernig slík framleiðsla gæti hentað íslenskum bændum. Um leið verða þær grunnur að mati á tæknilegum, rekstrarlegum og fjárhagslegum forsendum innlendrar framleiðslu á köfnunarefnisáburði.

Viltu taka þátt? Skannaðu QR-kóðann og svaraðu stuttri könnun. Svör bænda eru mikilvæg til að meta áhuga, þarfir og möguleika á innlendri framleiðslu köfnunarefnisáburðar.

Ef áform Atmonia ganga eftir gæti þessi framleiðsluaðferð orðið mikilvægt skref í átt að sjálfbærari íslenskum landbúnaði. Ísland býr yfir hreinni endurnýjanlegri raforku, hreinu vatni og sterkri nýsköpunarþekkingu. Með því að nýta þessar auðlindir til framleiðslu á köfnunarefnisáburði gæti kolefnisspor áburðar minnkað, verðmætasköpun innanlands aukist og íslenskur landbúnaður orðið síður háður innflutningi. Um leið myndi fæðuöryggi landsins styrkjast og áhrif sveiflna á alþjóðlegum mörkuðum minnka.

Þótt framleiðsluaðferðin sé enn á þróunarstigi er mikilvægt að hún taki mið af reynslu íslenskra bænda og þeim aðstæðum sem þeir búa við. Við hvetjum því alla bændur til að gefa sér nokkrar mínútur og svara könnuninni. Með þátttöku sinni geta þeir lagt sitt af mörkum til að móta lausn sem gæti í framtíðinni orðið mikilvægur þáttur í sjálfbærum, samkeppnishæfum og öflugum íslenskum landbúnaði.

Höfundur er aðjunkt við Landbúnaðarháskóla Íslands.

Skylt efni: áburður | rannsóknir | LbhÍ

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...