Verð á yfir 200 lífrænum vörum lækkað í Krónunni
Krónan lækkaði verð frá stærsta vörumerki sínu, Grön Balance, um 10% um áramót en vörur þess eru allar lífrænt vottaðar. Framtíðarsýn Krónunnar er að gera sjálfbæran lífsstíl að daglegum venjum allra.
Krónan fékk Svansvottun, opinbert umhverfismerki Norðurlandanna, árið 2019 og er stærsta verslunarkeðjan á Norðurlöndunum sem státar af Svansvottun. Um áramót lækkaði Krónan verð á öllum vörum Grön Balance, sem er stærsta vörumerki Krónunnar, um 10% en vörur þess eru allar lífrænt vottaðar og innihalda bæði matvöru, barnavörur, hreinsiefni og snyrtivörur.
Eftirspurn og fræðsla fara saman
Sala hefur aukist á vörum frá Grön Balance en ekki eins mikið og vonast hafði verið eftir, segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, þó merkjanlegur aukinn áhugi á lífrænum vörum hafi orðið undanfarin þrjú til fjögur ár. Hún segir að reynsla þeirra sýni að eftirspurn og fræðsla fari hönd í hönd, fólk haldi gjarnan að lífrænt vottaðar vörur séu dýrari sem þær þurfi ekki endilega að vera. Vald stórra verslanakeðja er því mikið, vald sem þær þurfa að fara vel með, segir Guðrún.
Lífrænt verði fyrsta val neytenda
Guðrún segir að hagstæð innkaup og gott samtal við birgjann geri þeim kleift að fara í slíkt innkaups- og markaðsátak. Hún segir þau horfa til Danmerkur í þróuninni, þar sé það gjarnan fyrsta val neytenda að velja lífrænt, en hér sé það annað val. „Framtíðarsýnin í Krónunni er að við viljum gera sjálfbæran lífsstíl að daglegum venjum allra.“
Ákvörðun um að lækka verð á vörumerkinu er strategísk og fylgir framtíðarsýninni og þremur grunnstólpum lýðheilsustefnu Krónunnar, sem eru upplýst val, hollt og gott vöruúrval allan ársins hring og stuðningur við samfélagsleg verkefni.
Ekki alltaf framleitt nóg innanlands
Þótt íslensk framleiðsla kosti stundum meira en innflutt þá velja neytendur hana frekar, segir Guðrún, þau finni það greinilega. En það er ekki alltaf framleitt nóg innanlands og þá þarf að flytja inn til að svara eftirspurninni. Eins sé það áskorun að takmörkuð meðvitund sé um árstíðir í ræktun og landsmenn geri ráð fyrir að hægt sé að kaupa allar vörur á öllum árstíðum. Þannig eru hugmyndir um aspastíð, bláberjatíð og plómutíð fáheyrðar á sama tíma og nýuppteknar kartöflur og kjöt af nýslátruðu er landsmönnum vel kunnugt. Þarna er tækifæri til lærdóms sem stuðlað getur að aukinni sjálfbærni.
Kallað eftir samtali við stjórnvöld
Mikið framboð er af gjörunnum matvælum og orkudrykkjum í Krónunni sem kann að virðast þversagnakennt í ljósi bjartrar framtíðarsýnar og grunnstólpa lýðheilsustefnunnar. Aðspurð um hvort stefnan sé að minnka samhliða framboð á gjörunnum matvælum og ævintýralegu drykkjaúrvali segir hún svo vera en Krónan aðhyllist aðferðarfræði þess að bjóða upp á ólíka valkosti og frekar hvetja viðskiptavini til heilnæmra kosta með því að setja þá framar í búðirnar. Hún hafi aftur á móti áhyggjur af magni gjörunna matvara, hraða lífsstílsins og þess að fólk gefi sér ekki tíma til að borða hreinan og hollan mat.
Guðrún segir sameiginlegt átak þurfa til í samfélaginu, sem að hennar mati ætti frekar að fela í sér lækkun á verði á ávöxtum og grænmeti og hollum fæðutegundum, frekar en skattlagningu á óhollustu, hvatar frekar en skammir hafi jákvæð áhrif á neytendahegðun. Þau kalla eftir samtali við stjórnvöld.
Fleiri hvatar til heilnæmrar neyslu
Fleiri skref eru í burðarliðnum og þróun á eigin vörulínu, Krónan lífrænt, er næst á dagskrá, en þegar eru komnar nokkrar vörur á markað og fleiri væntanlegar með hækkandi sól. Með þessu vilji Krónan gera sitt til að hjálpa neytendum að kaupa góðar og hollar vörur, innkaupakarfan er enda orðin dýr og áþreifanlegt sé að viðskiptavinir rýna vel í hvað fær að fara í körfuna.

