Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Veljið rétta fatnaðinn í smalamennskuna
Fréttir 13. september 2016

Veljið rétta fatnaðinn í smalamennskuna

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Að mestu hefur eftirfarandi texti komið fyrir hér í þessum pistlum áður. Nú er sá tími árs sem margir fara á fjöll í smalamennsku og því ekki úr vegi að fara aðeins yfir klæðnað sem hentar. 
 
Svo vitnað sé til orðalags í bókinni Ferðamennska og rötun, sem gefin var út af Slysavarnafélaginu Landsbjörg þar sem farið var yfir hentug föt til útivistar, segir þar nokkurn veginn orðrétt: 
„Engin bómull ætti að fara með til fjalla, gallabuxur, bolir, nærföt og sokkar úr bómullarefni eiga ekkert erindi á fjöll, bómullarföt halda verst hita ef þau blotna, bómull dregur í sig raka og einangrar þá ekkert.“ Til er mikið af góðum fatnaði og sokkum sem einangra vel, jafnvel þótt blaut séu. Fyrir skömmu fór ég fjallaferð í roki og rigningu og varð þess áskynja að ferðafélagi minn var skjálfandi af kulda í byrjun dags, en ástæðan var blautur bómullarbolur og í næsta fjallaskála fór hann úr bolnum og í ullarbol innstan klæða og var fljótur að ná úr sér skjálftanum. 
 
Íslensku ullarfötin standa alltaf fyrir sínu
 
Góð ullarnærföt standa alltaf fyrir sínu og ekki mikil svitalykt af ullarfötum. Regnfötin eru ómissandi, en endilega notið sem mest áberandi regnföt því þegar regnfatnaðar er þörf er almennt ekki gott skyggni og betra að vera í appelsínugulu regnfötunum frá 66 sem sjást svo vel. 
 
Sokkar og skófatnaður er jafn breytilegur og úrvalið mikið. Að vera blautur og kaldur á fótunum er manni alls staðar kalt og því mikil nauðsyn að vera vel útbúinn til fóta. Flóran í góðum sokkum er mikil, en mér hefur reynst vel sokkar úr efni sem heitir „neopren“, sama efni og er í blautbúningum kafara). Þó maður blotni verður manni ekki kalt. Ullarsokkar úr hreinni íslenskri ull eru þó alltaf gulls ígildi. Margir eru farnir að nota sokka sem nefnast selskinnssokkar og eru vatnsheldir og mjög hlýir.
 
Aldrei fara á fjöll nema með aukasokka og aukavettlinga
 
Misjafnt er hvernig menn búa sig til ferða, en ég fer oft hálendisdagsferðir á minni mótormeri og alltaf eru a.m.k. tvenn aukasokkapör, aukavettlingar og það nýjasta í bakpokanum er síðu upphituðu nærbuxurnar og fullhlaðin rafhlaða sem ég skrifaði um í fyrrasumar.
 
Aldrei fer ég án litla sjúkra­pakkans, hann fylgir mér í allar fjallaferðir. Að lokum, ég hef kynnst því að detta á hausinn. Mín verstu meiðsli urðu þó þegar ég féll af hjólinu en var þó á minni hraða en margur smalahesturinn nær. Alltof oft sér maður hesta­menn hjálm­lausa í smölun og einnig hef ég séð smala á fjórhjóli án hjálms. Förum jákvæð inn í smalamennskuna þetta árið og notum þann öryggisbúnað sem völ er á. Það er ömurlegt að heyra fréttir af slysum við smalamennsku. Nýjasta leynivopn mitt fæst í ýmsum útivistarvörubúðum og eru nokkrir pakkar af tá-, vettlinga- og búkhiturum sem gott er að setja í skó, vettlinga og á búk ef allt verður blautt. Þessir hitaplattar gefa ágætis hita í nokkra klukkutíma. Ég setti svona í skóna mína blauta og kalda í síðustu viku og fór í skóna í blautum sokkunum og þetta virkaði fínt.
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.