Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 ára.
Útivist kjúklinganna í Gunnarshólma.
Útivist kjúklinganna í Gunnarshólma.
Fréttir 27. ágúst 2014

Velferðarkjúklingur í búðir

Höfundur: /smh

Um miðjan ágústmánuð bárust fyrstu kjúklingaafurðirnar í verslanir frá kjúklingabúinu Litlu gulu hænunni, í Gunnarshólma við Suðurlandsveg, en þar eru sjónarmið dýravelferðar höfð að leiðarljósi við eldið.

Það eru lögfræðingarnir Margrét Gunnarsdóttir og Elva Björk Barkardóttir sem eiga og reka Litlu gulu hænuna ásamt móður Elvu, Jónu Margréti Kristinsdóttur, sem fyrir var bóndi í Gunnarshólma. „Hugmyndin kviknaði síðasta vetur og fórum við fljótlega á fullt að hrinda henni í framkvæmd. Víðast hvar erlendis hafa neytendur val um það hvort þeir kaupi kjúkling sem alinn er í hefðbundinni framleiðslu, lífrænan eða vistvænan kjúkling. Okkur fannst spennandi að geta boðið neytendum á Íslandi upp á annan valkost. Það lá beinast við að notast við gömlu útihúsin á Gunnarshólma en ein af stofnendum Litlu gulu hænunnar, Jóna Margrét, er jafnframt eigandi og ábúandi þar,“ segir Margrét.

Áhersla á velferð kjúklinganna

„Í upphafi skoðuðum við mögu­leikann á að fara út í lífræna framleiðslu á kjúkling en sáum fljótlega að það yrði mjög erfitt og dýrt. Til þess að fá lífræna vottun hefðu við þurft að flytja inn nýjan stofn þar sem sú krafa er gerð að foreldrafuglinn sé lífrænn auk þess sem við hefðum þurft að vera með eigið stofnbú. Slíkt hefði verið gríðarlega kostnaðarsamt. Við ákváðum því fljótlega að áherslan skyldi vera á velferð kjúklinganna en auk þess förum við aðrar leiðir í fóðrun en hefur tíðkast. Við eigum svo eftir að skoða það þegar fram í sækir hvort við sækjumst eftir vistvænni vottun á vöruna okkar.

Við miðum við að ekki séu fleiri en í kringum 12 fuglar á hvern fermetra og við höfum útbúið útisvæði fyrir fuglana. Þeir hafa mjög gaman af því að fara út og kroppa í gras og sand,“ segir Margrét. Þess má geta að í núgildandi aðbúnaðarreglugerðum er gert ráð fyrir að ekki séu fleiri en 19 fuglar á hvern fermetra gólfflatar.

Kjúklingurinn, er að sögn Margrétar, aðeins dýrari en annar kjúklingur út í búð. „Við höfum þó reynt að halda verðinu í lágmarki svo að þetta sé ekki einhver munaðarvara sem fáir hafi efni á að kaupa. Það er þó óhjákvæmilegt að varan sé dýrari, fóðrið sem við kaupum er dýrara og framleiðsla í svona smáum einingum eins og við erum með verður alltaf kostnaðarsamari.“
 

7 myndir:

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.