Vel sótt Landbúnaðarsýning
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Fréttir 12. október 2026

Vel sótt Landbúnaðarsýning

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir
Ólafur M. Jóhannesson.

Sýningin Íslenskur Landbúnaður fór fram í Laugardalshöllinni síðustu helgi, 9.-11. október, og um 60-70 þúsund gestir mættu á sýninguna. Glaðbeittir gestir á öllum aldri nutu þess að skoða allt það sem íslenskur landbúnaður hefur fram að færa. 

Ólafur M. Jóhannesson, framkvæmdastjóri sýningarinnar, segir að það sem helst hafi staðið upp úr á sýningunni hafi verið fjölbreytni básanna og nefndi hann sérstaklega hversu þróaður og hátækniæddur íslenskur landbúnaður er orðinn. „Til dæmis hvernig mjaltaþjónarnir fylgjast með heilbrigði gripanna og láta bóndann jafnvel vita ef eitthvað er ekki eins og á að vera samkvæmt fyrri gögnum.“ Þá hafi líka verið eftirtektarvert hvernig íslenskir bændur leita að hagkvæmari orkulausnum í sínum landbúnaði. 

Stigið upp í Massey Feguson. Mynd / Ástvaldur Lárusson

Matarbásar og ungviði

Á sýningunni var hægt að gæða sér á ýmsu góðgæti úr íslenskri sveit á hinum fjölmörgu matarbásum sem var dreift um sýningarrýmið. Ólafur segir að gestir sýningarinnar hafi sýnt þeim básum sérstakan áhuga „enda framleiða íslenskir bændur hreinustu og bestu landbúnaðarafurðir sem um getur“. 

Stórvirkar landbúnaðarvélar prýddu sýninguna og gestum og gangandi bauðst að skoða þær og kynna sér nýungar. Ólafur segir að ungir gestir sýningarinnar hafi sýnt vélunum sérstakan áhuga og fengið að setjast upp í gríðarstór tækin. „Þarna hefur kannski verið lagður hornsteinn að nokkrum bændum framtíðarinnar.“

Bændur sem lögðu leið sína á sýninguna voru ekki síður ánægðir. Gestir komu hvaðanæva að af landinu og hefur Ólafur eftir bónda að norðan að hann hafi hitt 40 bændur og búalið sem hann hafi ekki hitt í mörg ár. „Svona sýningar eru ekki síst mikilvægar þegar menn hittast helst á tölvuskjá.“ 

Mynd / Ástvaldur Lárusson

 

Mynd / Ástvaldur Lárusson
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Mynd / Ástvaldur Lárusson

Skylt efni: Landbúnaðarsýning

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...