Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Birgir og Herborg hafa unnið hörðum höndum að því að koma sér fyrir á neðstu hæðinni í Húsi Sjávarklasans og verða þar í hópi veitingastaða í nýrri mathöll.
Birgir og Herborg hafa unnið hörðum höndum að því að koma sér fyrir á neðstu hæðinni í Húsi Sjávarklasans og verða þar í hópi veitingastaða í nýrri mathöll.
Mynd / smh
Fréttir 24. apríl 2018

Veitingastaðurinn Fjárhúsið sérhæfir sig í lambakjöti

Höfundur: smh
Í Húsi Sjávarklasans á Granda­garðinum er nú unnið að uppsetningu á litlum veitingastað sem heitir Fjárhúsið og mun helga sig sölu á fljótelduðum lambakjötsréttum – í svokölluðum street food-stíl. Að auki er ætlunin að bjóða upp á tvíreykt hangikjöt af forystusauðum. 
 
Eigendur að Fjárhúsinu eru Birgir og Herborg Svana Hjelm, en þau starfa bæði hjá Matartímanum, sem er dótturfyrirtæki Sölu­félags garðyrkjumanna; Birgir er matreiðslumeistari og framleiðslu­stjóri, en Herborg sviðsstjóri. 
 
Til húsa í nýrri Mathöll
 
„Birgir var búinn að ganga með þessa frábæru hugmynd í um 20 ár, það er að opna veitingastað sem myndi sérhæfa sig í íslensku lambakjöti. Við ræddum þessa hugmynd og niðurstaðan var að við myndum finna stað fyrir Fjárhúsið. Vorum búin að skoða nokkra staði en svo ákváðum við að sækja um úti á Granda í nýju mathöllinni sem verður opnuð núna fyrstu helgina í júní og fengum úthlutað bás, en það voru yfir 100 hugmyndir sendar inn,“ segir Herborg.
 
Reykt kjöt af forystufé
 
„Á matseðli verðum við með hefðbundna street food-rétti, eða það sem mætti kalla götuskyndirétti, en eins og nafnið  á staðnum gefur til kynna þá einbeitum við okkur að lambakjötsréttum. Við verðum til dæmis með lambaborgara, beikon, kótelettur með lundinni á (t-bein), steikur, pylsur og bjór-pylsur – einnig ætlum við að bjóða upp á tvíreykt hangikjöt frá Daníel Hanssyni sem býr í Þistilfirði en hann reykir kjöt af forystufé. Það kjöt er ólíkt kjöti af venjulegu sauðfé, forystuféð er háfættara og grennra og því er kjötið fituminna en hefðbundið lambakjöt. Við erum mjög spennt yfir þessum rétti hjá okkur. Við getum ekki lofað að þessi réttur verði allt árið, stofninn telur aðeins um 1.200 dýr og einungis er 30 dýrum slátrað árlega hjá Daníel.
 
Okkar sérstaða er að við leggjum mikla áherslu á að hafa íslenskt hráefni eins og hægt er, ekki bara lambakjöt, heldur líka íslenskt grænmeti, verðum með landnámshænuegg og bygg frá Þorvaldseyri. Okkur finnst mikilvægt að geta sagt viðskiptavinum okkar hvaðan hráefnið kemur og að það hafi sögu, nærumhverfið, íslenska náttúran og íslenska lindarvatnið sem er einstakt – forréttindi að geta boðið upp á svona heilnæmar vörur. Íslenska lambakjötið hefur mikla sérstöðu yfir annað kjöt þegar kemur  að hreinleika og dýrin ganga frjáls og eru ekki verksmiðjualin,“ segir Herborg og reiknar með að staðurinn verði opnaður í kringum 1. júní næstkomandi. 
 
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.