Veikindi í hestum á Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð
Fréttir 28. ágúst 2026

Veikindi í hestum á Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Veikindi komu upp í hrossum danska landsliðsins á nýafstöðnu Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð. Öflugar smitvarnir voru til staðar á mótinu og komu í veg fyrir útbreiðslu smitsins. 

Á vef Matvælastofnunnar (MAST) kom fram að á alþjóðlegum mótum sem þessum séu hross frá hverju landi hýst aðskilin og líkamshiti þeirra mældur tvisvar á dag. Þetta verklag hafi verið til þess að veikindin uppgötvuðust senmma og smitið virðist hafa haldist innan afmarkaðs hóps. 

Við sýnatöku hafi verið hægt að útiloka alvarlega smitsjúkdómavalda eins og EHV-1 og EIV (hestainflúensu) og anaplasmósu, bakteríusjúkdóm sem berst með skógarmítlum og einkennist meðal annars af háum hita. Einnig var hægt að útiloka eCov sem er hin svokallaðahitasótt sem þekkist hér á landi síðan 1998. Ekki er því vitað hvort veikindin séu af annarri orsök, svo sem fóðri

Hættan á smiti raunveruleg

MAST áréttar í tilkynningu sinni að hestamenn sem taki þátt í mótum fyrir utan landsteinana þurfi að vera meðvitaðir um smitvarnir. Framkvæmdastjóri LH hafi sagt MAST að allir þátttakendur á mótinu hafi verið meðvitaðir um stöðu mála og hvaða smitvarnarráaðstöfunum ætti að fylgja við heimkomu. 

Ýtrustu kröfur séu í gildi hér á landi til að verjast smitsjúkdómum í dýrum og sérstaklega hrossum, enda innflutningur þeirra með öllu óheimill, sem og reiðtygja og reiðhanska. Annan reiðfatnað má taka með sér aftur heim. Reynslan sýni að berist smit til landsins breiðist það hratt út hér á landi, enda íslenski hrossastofninn einangraður og með takmarkað ónæmi gegn mörgum þeim sjúkdómum sem finnast erlendis. 

Matvælastofnun bendir öllum hestamönnum á að kynna sér leiðbeiningar á heimasíðu stofnunarinnar og leiðbeina erlendum gestum og ferðamönnum á sínum vegum.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...