Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Varðveisla Guðmundarlundar
Mynd / Úr safni
Skoðun 13. apríl 2026

Varðveisla Guðmundarlundar

Höfundur: Beitir Ólafsson
Beitir Ólafsson.

Guðmundarlundur í Vatnsendahlíð í vatnsendalandi er eitt vistlegasta útisvæði Kópavogs og algjör perla fyrir fjölskyldur og ungmenni. Lundinum er einstaklega vel við haldið af Skógræktarfélagi Kópavogs sem heldur nú úti flottu leiksvæði fyrir börn, mini-golf velli, frisbí-golf velli, útigrillum, salernisaðstöðu og hefur Skógræktarfélagið m.a. staðið fyrir Ævintýri í Jólaskógi við góðar undirtektir. Talið er að um 200.000 manns heimsæki Guðmundarlund árlega.

Nú er þó svo komið að ekki er hægt að fresta mikilvægri fjárfestingu á svæðinu sem hefur setið á hakanum allt of lengi.

Rafmagns- og vatnsæðar eru ekki nægilega sverar til þess að anna eftirspurn. Þetta er ekki bara öryggismál heldur hefur þetta einnig áhrif á vænleika á útleigu veislusalar svæðisins. Rafmagni slær ítrekað út og svarar vatnsæðin ekki magni og þrýstingi. Í sinubrunanum um daginn ætlaði slökkvilið höfuðborgarsvæðisins að tengjast brunahananum í lundinum en þurftu að nota dælu svo nægt vatnsmagn og þrýstingur næðist upp til að geta sinnt slökkvistarfinu.

Húsakostir á svæðinu eru tveir, annarsvegar Gamla Húsið sem Skógræktarfélagið á og er með afnot af fyrir sína starfsemi og hinsvegar nýtt félags- og þjónustuhús sem er jafnframt fræðslusetur og veislusalur, Nýja Húsið.

Gamla húsið stendur undir nafni og er bara tímaspursmál hvenær það verður ónothæft. Þessu hafa starfsmenn svæðisins og stjórnendur í leik- og grunnskólum áhyggjur af. Á svæðinu hefur útikennsla aukist til muna og fá börn í Kópavogi mikilvæga útivist, fræðslu og tengingu við náttúruna og hafa nýtt Gamla húsið til að hita mat og sem aðsetur ef t.d. barn meiðir sig eða veður verður vont. Er húsið einnig aðstaða starfsmanna og sumarstarfsmanna.

Skógræktarfélag Kópavogs hefur horft til gámaeininga í eigu Kópavogsbæjar sem nýttar hafa verið við Þingholtsskóla og Kársnesskóla sem mögulegan arftaka. Kennarar bera gámunum góða sögu og er tilvalið að nýta það sem bærinn á nú þegar.

Við í Miðflokknum í Kópavogi teljum að svara verði kalli á úrbótum á svæðinu í þágu Kópavogsbúa. Þegar horft er á heildarmyndina og til langs tíma þá snýst þetta um meira en bara að viðhalda grænu svæði. Þetta snýst um að auka aðgengi barnanna okkar á öllum stigum skólakerfisins að útiveru og fræðslu, lýðheilsumál fyrir fólk á öllum aldri, samverustundir fjölskyldna og vina, öryggismál og margt fleira.

Guðmundarlundur er án efa eitt besta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og hefur skapað sér stóran sess í hjarta íbúa, á Skógrækarfélag Kópavogs stóran þátt í því og skilið miklar þakkir fyrir.

Það er löngu tímabært að setjast niður og skipuleggja þetta fallega svæði til framtíðar. Varðveitum Guðmundarlund, hlustum á ákallið og framkvæmum í þágu Kópavogs.

Höfundur er byggingarverktaki og í 3. sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.