Varað við kræklingatínslu
Matvælastofnun varar við tínslu og neyslu á krækling sunnan og suðvestanlands. Þetta á við um tínslu á kræklingi í Hvalfirði og á öðrum vinsælum tínslusvæðum. Í tilkynningu frá MAST segir að eiturþörungar hafi fundist í miklu magni í sjósýnum í Faxaflóa og fyrir sunnan landið í árlegum vorleiðangri Hafró.
Ástæða sé til ætla að eiturþörungar í sjó dafni víða vel, enda hafi tíðarfar í maí verði tiltölulega gott - sérstaklega suðvestanlands. Einnig er áréttað að ekki sé öruggt að treysta á munnmælin: „Það er óhætt að neyta kræklings sem tíndur er í mánuðum sem hafa „r“ í nafni sínu". Niðurstöður vöktunar á eiturþörungum í sjó og þörungaeitri í skel á ræktunarsvæðum kræklings má nálgast á vef Matvælastofnunar.
Þegar talað er um skelfiskeitrun hefur skelfiskurinn nærst á eitruðum svifþörungum og eitrið safnast fyrir í skelfiskinum án þess að hafa áhrif á hann en eituráhrifanna gætir aftur á móti hjá mönnum og öðrum dýrum sem neyta eitraðs skelfisks. Því er mikilvægt að hafa varan á ef neyta á skelfisks.
Verði fólk vart við einkenni svo sem doða eða titring við munn, ógleði, uppköst, krampa í kviðarholi, minnisleysi eða heilaþoku eftir neyslu skeldýra er viðkomandi bent á að hafa samband við heilbrigðistþjónustu og séu einkenni veruleg að hringja í neyðarlínuna 112 án tafar.
