Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Barón frá Bryðjuholti stendur efstur 2017 nautanna í dag, með 111 í einkunn.
Barón frá Bryðjuholti stendur efstur 2017 nautanna í dag, með 111 í einkunn.
Mynd / NBI
Á faglegum nótum 13. mars 2023

Úrvalsnýting nautanna sem voru fædd 2017

Höfundur: Guðmundur Jóhannesson, ráðunautur í nautgriparækt

Um langa hríð hafa niðurstöður afkvæmarannsókna á nautum verið dregnar fram með þeim hætti að skoða úrvalsnýtingu innan hvers árgangs á myndrænan hátt.

Guðmundur Jóhannesson

Þannig má gera sér nokkra grein fyrir hvaða áhrifa er að vænta í kúastofninum með notkun þeirra nauta sem valin eru til framhaldsnotkunar.

Nautaárgangurinn 2017 er sá síðasti sem valinn er til notkunar á grunni afkvæmarannsókna en nú hefur erfðamengisúrval tekið við og nautin valin út frá erfðamati byggðu á ætterni og arfgreiningum.

Í fyrstu skulum við skoða hvað er verið að mæla á þennan hátt. Úrvalsnýting fyrir ákveðinn eiginleika sýnir yfirburði þeirra nauta, sem valin eru til framhaldsnotkunar, í samanburði við það sem mögulega hefði mátt ná fram ef aðeins hefði verið valið fyrir þeim eiginleika og engum öðrum. Þegar valið er fyrir mörgum eiginleikum á sama tíma er illmögulegt að ná fram jákvæðu vali fyrir þeim öllum á sama tíma. Ástæða þess er ekki hvað síst að margir þeirra eiginleika sem valið er fyrir eru neikvætt tengdir innbyrðis og því verður sú útkoma ákaflega ólíkleg.

Hér verður litið á úrvalsnýtingu nauta sem fædd voru 2017 en afkvæmadómi þeirra lauk fyrir skömmu og ljóst að ekki munu fleiri naut koma til framhaldsnotkunar úr þessum árgangi. Árgangurinn var stór á okkar mælikvarða en hann taldi 35 naut. Til áframhaldandi notkunar komu ellefu naut, bæði mislengi og mismikið. Segja má að valið hafi verið nokkuð strangt og gerðar ríkar kröfur til þeirra nauta sem komust til notkunar sem reynd naut.

Ef litið er á þá mynd sem kemur fram með nautin frá 2017 er hún mikið fremur hagstæð, það er úrvalsnýtingin er jákvæð fyrir flestum eiginleikum.

Gagnvart þeim eiginleikum sem snúa að útliti og notagildi kúnna er hún nokkuð jákvæð en misgóð hvað afurðaeiginleikana snertir. Þannig eru þættir er lúta að magni mjög jákvæðir en neikvæðir varðandi hlutföll verðefna í mjólk, sérstaklega hlutfall próteins. Þessi niðurstaða er á margan hátt öndverð við niðurstöðuna fyrir 2016 árganginn þar sem útlits- og notagildisþættir komu sýnu betur út en afurðaeiginleikarnir.

Áhrif þessara nauta verða því að öllum líkindum sterk hvað afurðagetu snertir en neikvæð um hlutföll verðefna. Hvað útlitsþætti varðar, sem og eiginleika eins og mjaltir og skap, verða áhrifin fremur jákvæð.

Eðlilega kemur hæst úrvalsnýting fram í heildareinkunn, enda sú einkunn sem ræður hvað mestu um val nautanna, en einnig er úrvalsnýting fyrir afurðamagni há, það er fyrir mjólkur-, fitu- og próteinmagn.

Auðvitað eru þessir þættir nátengdir þannig að magn fitu og próteins fylgir magni mjólkur. Í heildina verða áhrif árgangsins jákvæð hvað alla eiginleika nema efnaþættina varðar.

Þessi niðurstaða, ásamt niðurstöðum fyrir síðustu árganga á undan, sýnir að enn er að vænta töluverðra framfara hvað snertir júgur- og spenagerð, mjaltir og skap á komandi árum. Framgangur afurðaeiginleikanna styrkist að hluta til með 2017 nautunum en neikvæðasta niðurstaðan er gagnvart próteinhlutfallinu.

Áhrif árgangsins munu að öllum líkindum ekki verða veruleg á kúastofninn í heild sinni, sá tímapunktur er þeir koma fram ræður þar miklu um.

Notkunartími þeirra verður frekar skammur þar sem yngri naut valin á grunni erfðamats banka á dyrnar og ryðja sér rúms.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...