Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Gyða Pétursdóttir, verkefnastjóri Terraforming LIFE og tengiliður landeldis hjá Bændasamtökum Íslands, og Sigurður Trausti Karvelsson, verkefnastjóri þróunar og rannsókna hjá First Water og yfirumsjónaraðili Terraforming LIFE.
Gyða Pétursdóttir, verkefnastjóri Terraforming LIFE og tengiliður landeldis hjá Bændasamtökum Íslands, og Sigurður Trausti Karvelsson, verkefnastjóri þróunar og rannsókna hjá First Water og yfirumsjónaraðili Terraforming LIFE.
Viðtal 25. febrúar 2026

Upplýsingum miðlað um reynslu af hringrásarverkefnum

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Á alþjóðlega viðburðinum LIFE platform sem haldinn var í Bologna á Ítalíu í desember, voru tveir íslenskir þátttakendur komnir meðal annars til að miðla af reynslu sinni af tilraunaverkefni um nýtingu á lífrænum hliðarstraumum landeldis og landbúnaðar.

Viðburðurinn snérist um framtíðarþróun evrópsks landbúnaðar og virðiskeðju matvæla. Það voru þau Gyða Pétursdóttir og Sigurður Trausti Karvelsson, sem starfa að íslenska verkefninu Terraforming LIFE. Það snýst um framleiðslu á áburði og lífgasi úr fiskeldismykju frá landeldi og öðrum lífrænum hliðarstraumum úr landbúnaði. Á viðburðinum fræddust þau um hvernig slík verkefni geti stuðlað að sterkari landbúnaði í Evrópu og flýtt fyrir innleiðingu lausna sem byggja á hringrás, jarðvegsvernd, fóðursjálfbærni og endurnýtingu á lífrænum hliðarstraumum.

Flýtt fyrir hringrásarlausnum

Að sögn Gyðu stóð LIFE að viðburðinum, sem er Umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins. Þar hafi komið saman fulltrúar frá fjölmörgum Evrópulöndum, sérfræðingar í landbúnaði, umhverfismálum, hringrásarhagkerfi og nýsköpun, auk verkefnateyma sem vinna að því að efla sjálfbærni og loftslagsþol á öllum stigum virðiskeðjunnar.

Terraforming LIFE er fjármagnað með styrk frá LIFE og segir Gyða að tilgangur viðburðarins hafi verið að ræða hvernig LIFE-verkefni geti stuðlað að sterkari landbúnaði í Evrópu og hvernig þau geta flýtt fyrir innleiðingu lausna sem byggja á hringrás, jarðvegsvernd, fóðursjálfbærni og endurnýtingu lífrænna hliðarstrauma.

„Á viðburðinum fengum við tækifæri til að kynna þær regluverksbreytingar sem nauðsynlegar eru til að hringrásarlausnir eins og Terraforming LIFE geti færst af tilraunastigi og orðið hluti af innviðunum. Þar var lögð áhersla á að skýra stöðu vörunnar, eða áburðarins, og að samræma gæðastaðla auk þess að koma upp samræmdu mati á nýjum lífrænum áburði þannig að samþykktarferlið verði bæði fyrirsjáanlegt og hraðvirkt.“

Mikilvægi verndaðra vörumerkja

Gyða segir að á viðburðinum hafi fjölmörg verkefni verið kynnt sem læra hafi mátt af á einn eða annan hátt. „Þar mætti nefna verkefnið IMAGE LIFE, sem miðar að því að gera Parmigiano Reggiano-virðiskeðjuna loftslagsvænni með því að skipta hluta af maís í fóðri kúnna út fyrir þurrkþolnara korn, spara vatn, bæta jarðveg og draga úr losun – án þess að skerða mjólkurafköst og gæði.

Hluti af dagskrá fundarins var vettvangsferð í lífræna ostabúið Bio Sant’Anna, þar sem gestir fengu góða innsýn í hvernig Ítalir halda utan um vörumerkið Parmigiano Reggiano. Í því felst meðal annars PDO-vernd, sem þýðir að aðeins ostur framleiddur á ákveðnu afmörkuðu svæði á Ítalíu getur borið nafnið. Þar að auki er hvert ostahjól rekjanlegt, virkt eftirlit er með mögulegum eftirlíkingum og mikill kraftur er lagður í fræðslu og miðlun í gegnum Parmigiano Reggiano Academy. Þessi heildstæða nálgun sem felur í sér rekjanleika, gæðastaðla, verndað upprunamerki og öfluga fræðslu sýnir hvernig vörumerki getur orðið sterkur drifkraftur fyrir bæði gæði og verðmætasköpun.

Það væri áhugavert að skoða nánar hvort og hvernig við hér á Íslandi gætum nýtt okkur svipaða nálgun, bæði hvað varðar vörumerkjavernd og hvernig gæðakeðja er byggð upp í kringum uppruna, framleiðslu og hefðir. Þetta gæti reynst gagnlegt í umræðu um þróun íslenskrar matvælaframleiðslu og vörumerkjastýringu til framtíðar.“

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.