Daníel Svavarsson, skrifstofustjóri á skrifstofu samhæfingar í forsætisráðuneytinu, og Sævar Helgi Bragason.
Daníel Svavarsson, skrifstofustjóri á skrifstofu samhæfingar í forsætisráðuneytinu, og Sævar Helgi Bragason.
Mynd / Vefur stjórnarráðsins
Fréttir 2. júní 2026

Upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

 upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst er kominn í loftið á Ísland.is. Þar má finna allt efni um almyrkvann, til dæmis hvort gripið verði til takmarkana á umferð og hvaða götur verða lokaðar. Einnig verða þar tenglar á frekari upplýsingar, meðal annars á viðbragðsaðila og markaðsstofur landshluta á almyrkvasvæðinu sem hafa unnið með sveitarfélögum að undirbúningi fyrir almyrkvann.

Á nýju vefnum verður einnig hægt að finna almennar og fræðandi upplýsingar um almyrkvann. Sævar Helgi Bragason, jarðfræðingur og vísindamiðlari verður stjórnvöldum til ráðgjafar varðandi fræðslu og miðlun upplýsinga um almyrkvann og undirbúning stjórnvalda.

Fjöldi manns stefnir að því að njóta almyrkvans 12. ágúst, Íslendingar og erlendir ferðamenn í bland. Því má reikna með álagi á samgöngur, útivistarsvæði og viðbragðsaðila. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins er bent á að íbúar á suðvesturhorni landsins séu í einstakri stöðu til að fylgjast með almyrkvanum og biðlað til þeirra að njóta hans heima og takmarka þannig umverð og stuðla að almannaöryggi. 

Vefurinn verður uppfærður reglulega fram að almyrkvanum. Fólk er hvatt til að fylgjast með þeim leiðbeiningum sem þar birtast til að geta undirbúið sig sem best fyrir daginn. Stýrihópur sem forsætisráðherra skipaði hefur unnið að því að safna upplýsingunum saman.

Skylt efni: almyrkvi

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.