Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Hross i Vatnsdal gæða sér á góðri tuggu.
Hross i Vatnsdal gæða sér á góðri tuggu.
Mynd / HKr.
Fréttir 6. desember 2017

Undirbúa stofnfund félags um blóðtöku úr fylfullum hryssum fyrir lyfjaiðnaðinn

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Allt að 30 bændur í Húnavatns­sýslu stunda það sem Kristján Þorbjörnsson kallar hrossabúskap  með blóðtöku og hyggjast þeir innan tíðar stofna félag um þessa búskaparhætti sína. Undirbúningur stendur sem hæst en blásið verður til fundar á Blönduósi einhvern næstu daga.
 
Kristján segir búskap þennan hafa verið stundaðan um áratugi, en hver og einn hafi verið í sínu horni. Nú vilji menn stilla saman strengi, auka fagþekkingu og gæta sinna hagsmuna og því standi til að stofna til formlegs félagsskapar.
 
Efnið nýtt í lyfjaframleiðslu
 
Kristján segir þessa framleiðslu ganga út á að taka blóð úr fylfullum hryssum og er byrjað á að taka sýni úr öllum hryssum í hópnum um 8 vikum eftir að stóðhesti hefur verið hleypt í stóðið. Niðurstaða rannsóknar á blóðsýninu segir svo til um hvaða hryssur eru tilbúnar til blóðtöku.
 
„Verið er að sækjast eftir efni í blóði þeirra, en 6-8 vikum eftir að þær eru fengnar framleiða hryssurnar sérstakt efni sem unnið er og notað við fósturvísaflutninga sem og einnig frjósemislyf,“ segir Kristján. Blóð er tekið úr jákvæðum hryssum einu sinni í viku. 
 
Viljum gæta okkar hagsmuna
 
Kristján segir þeim sem stunda þennan búskap hafa fjölgað hin síðari ár, þeir hafi yfir mismunandi stórum hóp að ráða, en algengt að þeir séu á bilinu frá 30 til 70, sums staðar talsvert fleiri en það. Í Húnavatnssýslunum séu allt að 30 hrossaeigendur sem stundi þessa grein landbúnaðar. 
 
„Það er ekki fyrir hendi neitt félag eða samtök sem hafa það beint á sinni stefnuskrá að þjónusta eða gæta hagsmuna þeirra sem stunda þessa framleiðslu,“ segir hann. „Úr því viljum við bæta og erum því að undirbúa stofnfund sem haldinn verður innan skamms á Blönduósi.  Markmið þess félags er auk þess að gæta hagsmuna þeirra sem eru í þessari framleiðslu, að stuðla að fræðslu, og vinna að því að koma á framfæri upplýsingum, sem bætt gæti reksturinn, til þeirra sem stunda þennan búskap.“
 
Einn kaupandi á Íslandi
 
Einungis einn kaupandi er til staðar hér á landi, fyrirtækið Ísteka. Dýralæknar á þess vegum sjá um blóðtöku, en eigendur hryssanna um annað umstang sem fylgir. Kristján segir að á liðnu hausti hafi verðið fyrir lítra af blóði verið á bilinu 1.309 upp í 1.800 krónur, en flokkaskipting blóðs og verð á hverjum flokki er alfarið í höndum fyrirtækisins. Segir Kristján að menn séu miskátir með að félagið geti einhliða ákveðið hvað greitt sé.
 
Eins og áður segir eru það töluvert margir í Húnavatnssýslum sem stunda blóðtöku, víðar um land einnig, en Sunnlendingar eru einna stærstir í þessari framleiðslu. 
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.