Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Lambahryggvöðvi var aðalréttur.
Lambahryggvöðvi var aðalréttur.
Mynd / Kokkalandsliðið
Fréttir 8. febrúar 2024

Tvenn gullverðlaun

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Íslenska kokkalandsliðið keppti á Ólympíuleikunum í matreiðslu í Stuttgart í Þýskalandi á sunnudaginn og þriðjudaginn sl. og fékk íslenska liðið gull fyrir báða dagana.

Á sunnudeginum var „Chefs table­dagur“, þar sem 11 réttir eru eldaðir fyrir 12 manns. Á seinni keppnisdeginum eldaði íslenska landsliðið þriggja rétta máltíð fyrir 110 manns.

Þjóðlegt hráefni

Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs íslenskra matreiðslumeistara, segir að íslenska landsliðið leggi mikið upp úr þjóðlegu hráefni. „Við notum fullt af íslensku grænmeti, íslenskan fisk og lambakjötið sem lykilhráefni. Íslenskt grænmeti er í margvíslegu hlutverki sem meðlæti og í smáréttum og raunar má segja að við reynum að nota innlent hráefni eins mikið og við getum. Á seinni deginum vorum við með þorsk í forrétt og lambahrygg í aðalrétt,“ segir Þórir.

Allt notað

Spurður hvernig hryggurinn hafi verið eldaður, hvort vöðvinn hafi verið notaður einn og sér, segir Þórir að þau hafi fengið heilan hrygg frá Kjarnafæði en úrbeini hann svo sjálf, að eiginlega allt sé notað með einum eða öðrum hætti. „Fitan er notuð, en hún er ekki með þegar við berum matinn fram. Eins notum við ýmiss konar afskurð sem notaður er til að búa til fars, sem síðan er notað sem fylling í eins konar brauðkollu. Hluti keppninnar er einmitt að sýna fram á góða nýtingu á hráefninu. Þetta snýst fyrst og fremst um að sýna fram á framúrskarandi fagmennsku í meðhöndlun og nýtingu á hráefninu til að skila afburðagóðum mat á diskana. Íslenska kokkalandsliðið er að mörgu leyti vannýtt auðlind fyrir markaðssetningu á íslenskum matvælum á erlendri grundu.“

Heildarstigafjöldinn gildir

Til að fá gull þurfa landsliðin að ná í stig á bilinu 91­100. Samanlögð stigatala úr báðum keppnisdögum gildir svo í heildarkeppninni.

Þegar blaðið fór í prentun var enn beðið eftir heildarúrslitum frá keppnisdögunum tveimur.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.