Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Tómatar og kartöflur af sömu plöntunni!
Lesendarýni 22. september 2025

Tómatar og kartöflur af sömu plöntunni!

Höfundur: Ingólfur Guðnason, kennari við Garðyrkjuskólann á Reykjum/FSu.

Ágræðsla er árþúsunda gömul aðferð til að bæta árangur ræktunar. Til dæmis er vísað til hennar í Nýja testamentinu: „En þótt nokkrar af greinunum hafi verið brotnar af og hafir þú sem ert villiolíuviður verið græddur inn í þeirra stað og fáir með öðrum greinum að njóta rótarsafa olíuviðarins, skaltu ekki stæra þig gegn hinum. Ef þú gerir það skaltu vita að þú berð ekki rótina heldur rótin þig.“ (Rómverjabréfið 11. kap. 17–18).

Langflest ávaxtatré nú til dags eru ágrædd og sama gildir um ræktun vínviðar og skrauttrjáa um allan heim. Aðferðin er þrautreynd og viðurkennd.

Nú vill svo til að margir íslenskir tómataræktendur hafa á síðustu árum notfært sér tækni sem felst í því að græða afkastamikil tómatayrki á grunnstofn annarra yrkja sömu tegundar sem hafa óvenju öflugt rótarkerfi. Ávinningur þess er að afkastageta plantnanna eykst til muna og gæði afurðanna jafnvel orðið enn betri.

Á göngum Garðyrkjuskólans á Reykjum er margt spjallað, meðal annars ágræðsla, og kostir hennar tíundaðir. Þar kom í umræðunni að ákveðið var að gera athugun með ágræðslu. Dirfskufull áætlun var skipulögð. Ætlunin var að græða tómatagreinar á ungar spíraðar kartöflur og sjá til hvernig til tækist. Einn af nýútskrifuðum garðyrkjufræðingum okkar, Jóhanna Íris Hjaltadóttir, tók að sér verkið undir leiðsögn kennara og hófst hún handa í tilraunahúsi Garðyrkjuskólans í apríl sl.

Kartöfluyrkið sem varð fyrir valinu heitir „Ben Lomond“ og var nokkrum útsæðiskartöflum komið í spírun og þær settar í potta. Smávaxna tómatayrkið „Minibel“ var notað við ágræðsluna. Þegar bæði kartöfluspírur og tómatatoppar voru með nokkurn veginn sama gildleika skeytti Jóhanna toppsprotum tómataplantna ofan á kartöfluspírurnar og gekk frá þeim eins og best var á kosið og ágræðslutilraunin hófst.

Þrátt fyrir nokkur afföll náðu nógu margar plöntur að lifa þessi ósköp af og voru þær ræktaðar áfram og gróðursettar í beð í tilraunahúsinu. Fáeinar voru líka ræktaðar áfram í stórum blómapottum og dekrað við þær í heimahúsum. Plönturnar tóku að vaxa og blómstra. Fljótlega fór að bera á tómataklösum á plöntunum og fékkst af þeim þó nokkur uppskera af bragðgóðum rauðum smátómötum, sem var ágætis niðurstaða út af fyrir sig. Enn átti þó eftir að reyna á hvort nokkrar kartöflur myndu þroskast í moldinni. Um miðjan ágústmánuð var ráðist í að taka plönturnar upp. Margar kartöflur komu í ljós, ekki stórar en fallegar og bragðgóðar, kannski með ofurlitlum tómatakeim að sumra mati.

Ekki var um að villast, það reyndist hægt að fá uppskeru af kartöflum og tómötum af sömu plöntu og þótti mörgum undrum sæta. Kannski opnast þarna dyr fyrir nýja framleiðslugrein með úrvinnslu afurðanna, franskar kartöflur og tómatsósa af einni og sömu plöntunni?

Lesendur geta síðan skemmt sér við að finna lýsandi heiti á þessari nýju íslensku grænmetistegund.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f