Tollurinn með kartöflumál til skoðunar
Fréttir 27. júní 2026

Tollurinn með kartöflumál til skoðunar

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Bændablaðið hefur nýlega fjallað um erfiða samkeppnisstöðu íslenskra kartöflubænda og þann grun um að verið sé að flytja inn ferskar matarkartöflur í töluverðu magni á öðrum tollfrjálsum tollnúmerum, líkt og númerum bökunarkartafla. Tollurinn er nú með málið til skoðunar.

Innflutningur á kartöflum hefur aldrei mælst meiri en á síðastliðnu tímabili ágúst til febrúar samkvæmt samantekt Bændasamtaka Íslands á gögnum frá Hagstofu Íslands og innlfutningstölum frá skattinum út frá tollnúmerum. Í grein Sigurðar Más Harðarsonar fréttamanns hjá Bændablaðinu kemur fram að kartöflubændur rekja aukinn innflutning til þess að vægi verndartolla fyrir innlendu framleiðsluna hafi rýrnað mjög frá ári til árs og þar sem innlendir kartöflubændur eru krónutölubundnir haldi þeir ekki í við almenna verðlagsþróun.

Jón Helgi Helgason, kartöflubóndi á Þórustöðum í Eyjafirði, hefur kallað eftir því að úttekt verði gerð á tollaeftirliti þegar kemur að kartöflum. Hann telur að leiðrétta þurfi tollskráningu fyrir bökunarkartöflur þar sem rökstuddur grunur sé um að verið sé að flytja inn ferskar venjulegar kartöflur í töluverðu magni á öðrum tollfrjálsum tollanúmerum og þetta megi lesa úr innflutnings- og sölutölum. Að sögn Jóns er söluminnkun á kartöflum svo mikil að það hljóti að vera koma kartöflur annars staðar frá inn á íslenskan markað. Hann telur að ef þessi þróun heldur áfram óbreytt muni íslensk kartöflurækt leggjast af.

Skylt efni: Kartöflur

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.