Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Fréttir 15. janúar 2020
Höfundur: Hörður Kristjánsson
Þann 23. desember síðastliðinn bárust þær fréttir frá Póllandi að fundist hafi 10 ný smittilfelli afrísku svínapestarinnar (African Swine Fever - ASF) í vesturhluta landsins. Smit hafa komið upp hjá 237 svínaræktendum í Póllandi. Í tilraun til að hefta för smitaðra villisvína hafa stjórnvöld í Þýskalandi verið að reisa girðingar á landamærunum við Pólland.
Hinn 23. desember tilkynnti pólska heilbrigðiseftirlitið að smitaðir svínaskrokkar hafi fundist á öðrum tug staða og væri heildartalan vegna smittilvika í vesturhluta Póllands komin í 71. Að minnsta kosti 87 villisvín hafa drepist af völdum afrísku svínapestarinnar í vesturhluta Póllands.
Nýjustu smitin fundust á svæði sem þegar var vitað að væri smitað, þannig að heildarfjöldi sýktra svæða hefur ekki breyst. Smitsvæðið er 65 km að breidd að vesturlandamærunum að Þýskalandi og 55 km til norðurs og suðurs. Svæðið nær inn í héruðin Lubusz, Mikla-Pólland (Wielkopolska) og Neðri-Slesíu.
Smit hefur komið upp hjá 237 svínaræktendum í Pólllandi
Afríska svínapestin hefur verið til staðar í 5 héruðum í Austur-Póllandi síðan 2014. Hefur smit breiðst út meðal villisvína og borist í svín hjá 237 bændum og bakgarðaræktendum, sem svo eru nefndir samkvæmt frétt á vefsíðu Pig Progress.
Þjóðverjar reisa varnargirðingar
Um miðjan desember voru settar upp nýjar varnargirðingar við þýsk-pólsku landamærin nálægt landamæraborginni Guben, í þýska ríkinu Brandenburg. Þetta er í 35 km fjarlægð frá pólska þorpinu Trzebule, í landamærahéraðinu Lubusz þar sem ASF smit hefur áður fundist.
Horft á allt svæðið milli Frankfurt og Tékklands
Neytendaverndarráðuneytið í Brandenburg sagði að mest áhersla væri nú lögð á að koma í veg fyrir að vírusinn hoppi yfir landamærin og til svæðanna við Spree-Neisse og Oder-Spree sem og til borgarinnar Frankfurt við Oder. Það nær yfir öll landamærin milli Frankfurt við Oder og þaðan í suður til landamæranna við Tékkland, fjarlægð, sem er um 160 km í beinni fluglínu.
Pólsk-þýsku landamærin fylgja hins vegar ánum Oder og Neisse í stórum sveig, þannig að heildarlengd landamæra sem þarf að skoða er talsvert lengri.
Ráðuneytið sagði að tímabundnar girðingar séu 90 cm á hæð og verði áfram hafðar á sínum stað meðan áhættuástand ríkir hinum megin við landamærin. Áætlað er að uppsetning girðinganna kosti um 160.000 evrur. Sveitarfélög munu sjá um framkvæmdina.
Ursula Nonnemacher, ráðherra neytendaverndar í Brandenburg-ríki, sagðist vona að girðingarnar myndu veita vernd að vissu marki.
Ekkert tilfelli af afrískri svínapest hefur fundist í Þýskalandi hingað til. Ef það gerist munu afleiðingar verða slæmar hvað varðar útflutning á svínakjöti til landa utan ESB. Verðlækkunin á svínakjöti frá sýktum svæðum sem því fylgir mun einnig hafa áhrif í löndum eins og Danmörku og Hollandi, sem bæði flytja út grísi til áframeldis í Þýskalandi. Reyndar eiga danskir bændur mikið undir því þeir hafa verið með öflugt áframeldi á grísum í Póllandi.
Meirihluti allra smitaðra villisvína hefur fundist í Lubusz-héraði, eða 59 dýr. Hefur smituðum dýrum þar fjölgað um 5. Smit á þessu svæði hafa verið í 15 km radíus umhverfis bæinn Konotop.
Fjöldi smitaðra dýra sem fundist hafa í Stóra-Póllandi (Wielkopolska) tvöfaldaðist 23. desember, eða úr 5 í 10. Öll dauð dýr á því svæði fundust innan 10 km frá hvort öðru – og voru einnig innan 25 km frá Konotop í Lubusz-héraði sem er mikilvægasta svínaræktarhérað Póllands.
Í Neðra-Silesíu hafa enn sem komið er aðeins fundist tveir skrokkar af svínum sem drepist hafa af völdum ASF. Þeir fundust 22. og 27. nóvember sl. Báðir fundust þeir innan við 2 km frá landamærum Lubusz-héraðs og um 20 km frá Konotop.
Líf&Starf 24. nóvember 2025
Lausn á vísnagátu
Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.
Líf&Starf 3. febrúar 2025
Skákmánuðurinn janúar
Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...
Líf&Starf 13. desember 2024
Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...
Líf&Starf 9. október 2024
Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...
Líf&Starf 14. ágúst 2024
Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...
Líf&Starf 2. júlí 2024
Stjörnuspá vikunnar
Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...
Líf&Starf 10. maí 2022
Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...
Líf&Starf 4. maí 2022
Lesning fyrir heilabilaða
Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...
3. desember 2025
Þýskar heimsbókmenntir
4. desember 2025
Kúabændur andvígir breytingum á búvörulögum
3. desember 2025
Laufey
4. desember 2025
Gjörunnin matvæli ógn við lýðheilsu
4. desember 2025
