Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 ára.
Til að framleiða Whisky í tvö lítil staup þarf heilt baðkar af vatni
Fréttir 20. janúar 2015

Til að framleiða Whisky í tvö lítil staup þarf heilt baðkar af vatni

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Vatn hefur meira notagildi en olía og er auk þess undirstaða lífs á jörðinni. Hins vegar hefur maðurinn farið mjög óvarlega með þetta dýrmæta vatn og horfir því víða um heim fram á vatnsskort í náinni framtíð.

Í bókinni Your Water Footprint er að finna ýmsar áhrifaríkar staðreyndir um vatn og vatnsnotkun. Þar segir að eftir einn áratug muni þrír af hverjum fimm jarðarbúum finna fyrir vatnsskorti. Um óheyrilega vatnsnotkun við iðnaðarframleiðslu segir m.a. að það þurfi 7.600 lítra af vatni til að framleiða einar gallabuxur. Á bak við hvern einasta bolla af morgunkaffi liggi vatnsnotkun sem nemur 140 lítrum. Það er að segja vatnið sem fer í að rækta kaffibaunina og vinna hana áður en vatnið fer í bollann sem kaffi. Gríðarlegt vatn sé þannig notað við framleiðslu á öllum neysluvörum, þar með töldum fötum, farsímum og öðrum raftækjum. Til að framleiða Whisky í tvö lítil staup þarf að nota vatn sem fylla myndi heilt baðkar. Til að rækta og vinna bómull í eina stuttermaskyrtu þarf að nota um 3 tonn af vatni.

Um 300 lítra þarf  til að framleiða tvær brauðsneiðar

Á bak við morgunverðinn er líka mikil vatnsnotkun. Til að framleiða hráefni sem fer í að búa til brauðsneiðar sem við setjum í brauðristina þarf að nota um 300 lítra af vatni. Til að framleiða tvö hænuegg fara samkvæmt bókinni um 400 lítrar af vatni, en þar á bakvið er væntanlega eldi á varphænunni og ræktun fóðursins sem hún étur. Þá eru tvær litlar beikonsneiðar sagðar útheimta um 300 lítra vatnsnotkun.

5,5 lítrar fara í að framleiða plastflösku fyrir hálfan vatnslítra

Þegar við kaupum vatn í hálfs lítra plastflösku, þá er búið að nota  um 5,5 lítra af vatni við að framleiða flöskuna sjálfa en plastið er unnið úr olíu.


Vesturlandabúar nota tvöfalt meira en meðaltal jarðarbúa

Fyrir utan þetta allt saman notum við óhemjumikið af vatni til að svala þorstanum, til eldunar og til að þvo okkur og umhverfi okkar. Þannig er talið að Bandaríkjamenn noti að meðaltali um  300 til 400 lítra af vatni á dag. Mesta vatnsnotkunin er þó við að sturta niður úr klósettinu. Ef öll vatnsnotkun vegna okkar lífshátta er talin með er áætlað að hver og einn Vesturlandabúi noti að meðaltali um 7.500 lítra af vatni á dag, sem er um tvöföld meðaltalsvatnsnotkun jarðarbúa. Líkum má leiða að því að Íslendingar noti miklu meira vatn en þetta. 

Skylt efni: vatn | Umhverfismál

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.