Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Fuglaflensa hefur greinst í sæljónum á og við strendur Perú.
Fuglaflensa hefur greinst í sæljónum á og við strendur Perú.
Mynd / Matthew Pablico
Utan úr heimi 18. apríl 2023

Þúsundir sæspendýra dauð við strendur Perú

Höfundur: Vilmundur Hansen

Vísindamenn óttast að fuglaflensa sé farin að berast milli ólíkra tegunda spendýra. Ástæða þess er meðal annars sú að fyrir skömmu fundust þúsundir dauðra sæljóna utan við og á ströndum Perú. Dánarorsök sæljónanna var fuglaflensa.

Fyrstu vísbendingar um dauða sæljónanna var þegar veikt dýr fannst á strönd í sunnanverðu landinu. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að sæljónið var aðframkomið af hungri. Sjúkdómsgreining sýndi að dýrið var sýkt af fuglaflensu, H5N1. Síðan þá hafa um 3.500 sæljón fundist dauð vegna flensunnar, eða 3,3% af skráðum stofni dýranna í landinu. Auk þess sem einnig hafa verið að finnast dauðir selir og otrar og einn höfrungur sem einnig reyndist sýktur af flensunni.

Fuglar og strandferðir

Dauð sæljón hafa meðal annars fundist á skerjum og á reki þar sem hræfuglar gæða sér á þeim og er það að auka enn frekar á hættu á útbreiðslu flensunnar. Sömu fuglar leita í úrgang af mannavöldum sem víða er að finna í borgum í Perú, ekki síst í fátækrahverfum.

Fuglaflensa greindist fyrst við strendur Perú í nóvember á síðasta ári í mörgæsum og breiddist síðan út í aðrar tegundir sjófugla sem spóka sig á ströndinni innan um baðstrandargesti.

Banna hanaat

Heilbrigðisyfirvöld í Perú segjast líta á fuglaflensuna sem vaxandi áhyggjuefni í ljósi þess að hún virðist vera að berast milli ólíkra spendýrategunda en ekki bara frá fuglum í spendýr og því ekki ólíklegt að hún geti borist í menn eða milli manna.

Fuglaflensa hefur greinst í fimmtán löndum í Suður-Ameríku en dánartíðni spendýra í Perú er mest af öllum löndum í álfunni. Eitt af því sem gert hefur verið í Perú til að draga úr hættu á útbreiðslu fuglaflensu er að banna hanaat.

Áhyggjur WHO

Samkvæmt frétt á Reuters fyrir skömmu lést ellefu ára gömul stúlka í Kambódíu eftir að hafa smitast af H5N1 afbrigði fuglaflensunnar.

Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO segja að afleiðingar þess ef veiran stökkbreytist og verði smitandi með lofti og haldi núverandi dánartíðni geti orðið skelfilegar og að dánartíðnin á heimsvísu gæti legið á milli 5 til 150 milljón manns.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.